Hafsteinn gefur kost á sér í 3. sæti
Hafsteinn Pálsson gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna sem fram fer 10. febrúar. Hafsteinn situr í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og er formaður bæjarráðs. Hafsteinn er ritari stjórnar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands þar sem hann leiðir heiðursráð sambandsins. Hann er stjórnarformaður Íslenskra getrauna og áður gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Aftureldingu. Hafsteinn er byggingarverkfræðingur að mennt og starfar hjá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu. Hafsteinn er kvæntur Láru Torfadóttur, kennara í Lágafellsskóla, og þeirra börn eru Guðrún Erna viðskiptafræðingur, Jóhanna Rut ljósmóðir og Snævar Ingi íþróttafræðingur.