Fjárhagur með flensu
Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 liggur nú fyrir og ljóst er að það eru gul blikkandi ljós í fjármálum bæjarins sem nýr meirihluti mun þurfa að takast á við eftir kosningar 16. maí, því ekki hefur núverandi meirihluti Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar gert það.
Skuldsetningin sé að vaxa hraðar en reksturinn ræður við.
Dökkar horfur 2026
Forsendur fjárhagsáætlun 2026 byggja á 3,5% verðbólgu og lækkandi vöxtum, en raunin er því mið ur allt önnur. Verðbólga mælist nú 5,4% og stýrivextir Seðlabankans hafa verið hækkaðir í 7,50% í stað þeirra
Rekstarniðurstaða byggð á einskiptistekjum
Rekstarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 514 milljónir króna, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að einskiptistekjur af lóðasölu og byggingarétti námu 766 milljónum króna. Það er því ljóst að daglegur rekstur sveitarfélagsins er í tapi um rúmar 250 milljónir króna á árinu 2025.
Laun og launatengd gjöld fóru 404 millj ónum króna fram úr áætlun, úr 11.906 milljónum í 12.310 milljónir. Þetta er stærsta einstaka frávikið í reikningnum og er alls ekki góð niðurstaða.
Ört hækkandi skuldir
Fjármagnsgjöld voru 114 milljónum króna hærri en áætlað var. Nettó fjármagnsgjöld námu 1.365 milljónum í stað 1.251 milljóna samkvæmt áætlun. Langtímaskuldir við lánastofnanir jukust um rúmlega 1,7
milljarða króna á einu ári og standa nú í yfir 20 milljörðum króna fyrir A og B hluta.
Framkvæmdir stóðust ekki áætlun Framkvæmdaáætlun fyrir árið 2025 var upp á 4,3 milljarða og heildar áætlanir gerðu ráð fyrir 5,4 milljörðum í brúttó fjárfestingu fyrir A og B hluta, þau markmið náðust ekki því framkvæmdir voru rúmlega milljarði undir áætlun.
Þrátt fyrir að framkvæmdáætlun hafi ekki gengið eftir og og þrátt fyrir miklar hækkanir á sköttum og álögum á íbúa allt kjör tímabilið er fjárhagsstaðan með þessum hætti.
Veltufé frá rekstri nam 1.537 milljónum króna, 470 milljónum undir áætlun. Þótt Langtímaskuldir í hlutfalli við veltufé frá rekstri hækka hratt og spurning hvort vaxtalækkana sem áætlunin byggði á. Forsendur áætlunarinnar eru því algjörlega brostnar.
Tveggja prósentustiga frávik í verðbólgu getur eitt og sér bætt 400–550 milljónum við skuldabyrðina á árinu. Kjarasamningar frá 2024 heimila uppsögn fari verðbólga yfir 4,7% og launakostnaður gæti hækkað langt umfram áætlun. Áætlaður rekstrarafgangur í fjárhagsáætlun 2026 er 557 milljónir samkvæmt áætlun. Ef forsendur breytast ekki til hins betra og hagræðinga ekki gætt í rekstri, þá gæti niðurstaða rekstrar Mosfellsbær orðið neikvæð um 500 til 800 milljónir á árinu 2026.
Breytinga er þörf
Slæm rekstrarniðurstaða af rekstri bæjarins er ekki tilkomin af einstaka frávikum, þetta er mynstur. Reksturinn er byggður á einskiptistekjum ár eftir ár, launakostnaður fer úr böndunum og skuldir aukast hratt þrátt fyrir vanefndir í framkvæmdum. Nú verandi meirihluti skuldar bæjarbúum í Mosfellsbæ betri stjórn á útgjöldum, raunhæfari áætlanir og sjálfbæran rekstur.
Við frambjóðendur D-lista í Mosfellsbæ fyrir komandi kosningar viljum tryggja íbúum Mosfellsbæjar, ábyrgð í rekstri, aðhald í fjármálum. Við munum einnig stemma stigu við þeim miklu hækkunum á gjöldum og álögum á íbúa ef við verðum í meirihluta eftir kosningar 16. maí.
Fjárhagsleg ábyrgð er ekki slagorð, hún er nauðsyn.
Ásgeir Sveinsson
Bæjarfulltrúi D-lista í Mosfellsbæ




