Undirritaðir voru styrktarsamningar úr Klörusjóði Mosfellsbæjar miðvikudaginn 27. maí.
Markmið sjóðsins er að styðja við nýsköpun, þróun og framfarir í skóla- og frístundastarfi í bænum og gefa starfsfólki tækifæri til að hrinda metnaðarfullum hugmyndum í framkvæmd.
Klörusjóður veitir styrki einu sinni á ári og nam heildarúthlutun ársins 2026 alls 3,5 milljónum króna. Umsóknir geta komið frá kennurum, öðru fagfólki, einstökum skólum eða samstarfsverkefnum innan skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Að þessu sinni hlutu fimm fjölbreytt verkefni styrki úr sjóðnum.
Leikfélag Lágafellsskóla fékk hæsta styrkinn
Stærsti einstaki styrkurinn, ein milljón króna, rann til Leikfélags Lágafellsskóla.
Markmið verkefnisins er að efla sjálfstraust, samvinnu og sköpunargáfu ungmenna með metnaðarfullum leiksýningum þar sem nemendur taka þátt í öllum helstu þáttum sviðslistar.
Leikur og lýðræði í Reykjakoti
Leikskólinn Reykjakot hlaut 800 þúsund króna styrk fyrir verkefnið „Leikur og lýðræði í leikskólastarfi“.
Í verkefninu verður lögð áhersla á leik sem meginnámsleið barna og að þau fái aukin tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám og umhverfi.
Áfallamiðuð nálgun í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli fékk 600 þúsund króna styrk til innleiðingar á áfallamiðaðri nálgun í skólastarfi.
Verkefnið miðar að því að efla þekkingu starfsfólks á áhrifum áfalla og skapa öruggara og styðjandi námsumhverfi fyrir nemendur.
Tæknilæsi með LEGO í Kvíslarskóla
Kvíslarskóli hlaut 640 þúsund króna styrk fyrir verkefnið „Tækni LEGO“.
Þar verður LEGO Education Spike Prime nýtt til að efla tæknilæsi, skapandi hugsun og lausnaleit nemenda í 9. og 10. bekk.
Hænur í Helgafelli
Leikskóladeild Helgafellsskóla fékk 450 þúsund króna styrk fyrir verkefnið „Hænur í Helgafelli“.
Til stendur að koma upp hænsnakofa á skólalóðinni og nýta verkefnið til að kenna börnum um sjálfbærni, ábyrgð, umönnun dýra og fæðuhringrásina með reynslumiðuðu námi.
Fjölbreytt verkefni sem efla skólastarf
Verkefnin sem hlutu styrki í ár endurspegla vel þá fjölbreytni sem einkennir skóla- og frístundastarf í Mosfellsbæ.
Með styrkjunum skapast tækifæri til að þróa nýjar kennsluaðferðir, efla sköpun og styðja við vellíðan og þátttöku barna og ungmenna í bænum.
