Laugardagur, 28. nóvember 2026
Forsíða
Fréttir

Dagskráin í Túninu heima

3 mín. lestur
Facebook

Hér er öll dagskráin: Í túninu heima_dagskrá opna

Í túninu heima 27.–30. ágúst

Bæjarhátíðin Í túninu heima verður haldin 27.–30. ágúst. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og teygir sig vítt og breitt um Mosfellsbæ, frá miðbænum og Álafosskvos upp á fellin og inn í Mosfellsdal.

Hátíðin verður formlega sett í Hlégarði kl. 17 á fimmtudag. Við það tækifæri verða umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar veittar og bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 útnefndur.

Sama dag verður meðal annars sundlaugarkvöld í Lágafellslaug, Fellahringurinn hjólaður og boðið upp á fræðslugöngu meðfram Varmá.

Þekktir og vinsælir dagskrárliðir verða á sínum stað um helgina, þar á meðal Ullarpartí í Álafosskvos, Wings and Wheels á Tungubökkum, Kjúklingafestival, Tindahlaupið og götugrill.

Allir taka þátt

Sérstaða hátíðarinnar felst ekki síst í þátttöku heimafólks. Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki taka virkan þátt í hátíðinni og Mosfellingar skreyta hús sín og götur í hverfislitunum: gulum, rauðum, bleikum og bláum.

Á föstudagskvöld verður Ullarpartí með brekkusöng og skemmtidagskrá í Álafosskvos. Lúðrasveit Mosfellsbæjar ásamt eldri nemendum Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar tekur á móti gestum, Inspector Spacetime hitar upp brekkuna og Ketill Ágústsson stýrir brekkusöngnum.

Á laugardeginum bjóða Mosfellingar heim víðs vegar um bæinn og tónlistin ómar í görðum og götum. Í Kjarna verður hægt að gera góð kaup á Loppumarkaði.

Á laugardagskvöld safnast íbúar síðan saman í götugrill í vel skreyttum götum bæjarins.

Á sunnudag verður matarmarkaður í Álafosskvos þar sem framleiðendur sýna, segja frá og selja vörur sínar beint til gesta. Handverk verður einnig áberandi um helgina, meðal annars hjá Ásgarði og Körlum í skúrum í Mosfellsbæ.

Stórtónleikarnir fara fram á Hlégarðstúni síðdegis á sunnudeginum og þar koma fram Sprite Zero Klan, Sigga Ósk, Tónhylur Akademía og Herra Hnetusmjör.

Heilsueflandi bæjarhátíð

Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag og íþróttir og útivist skipa stóran sess á hátíðinni.

Hundahlaupið fer fram á þriðjudegi og á fimmtudagskvöld fer Fellahringurinn fram þar sem hjólreiðafólk getur valið um 15 og 30 km leið.

Tindahlaup Mosfellsbæjar fer fram á laugardegi og hægt verður að velja um einn, þrjá, fimm eða sjö tinda. Sama dag fer fram heimaleikur Aftureldingar og Vestra í Lengjudeild karla á Malbikstöðinni að Varmá.

Á sunnudegi verður síðan fótboltamót Aftureldingar og Gæðabaksturs á Tungubökkum auk opins fjölskyldutíma í íþróttahúsinu að Varmá.

Hjólreiðafólk fær einnig sérstaka ástæðu til að fagna í ár þegar ný „pump track“ hjólabraut verður vígð í Ævintýragarðinum miðvikudaginn 26. ágúst. BMX Brós sýna listir sínar og iðkendur Hjóladeildar Aftureldingar verða á staðnum.

Fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fjölskyldur

Yngri kynslóðin ætti ekki að þurfa að láta sér leiðast. Á fimmtudegi verður mikið fjör og sundlaugargleði í Lágafellslaug.

Á laugardegi sýnir Brúðubíllinn Afmælisveisluna í Álafosskvos, Lalli töframaður fagnar með lestrarhestum bókasafnsins og hægt verður að fara á hestbak og í hoppukastala á Stekkjarflöt.

Wings and Wheels verður á Tungubakkaflugvelli á laugardag þar sem flugvélar, gamlir bílar og dráttarvélar verða til sýnis. Fergusonfélagið stendur fyrir hópakstri um Mosfellsbæ og þar verður einnig karamellukast síðdegis.

Á sunnudegi sýnir Sirkus Ananas sýninguna Mikilvæg mistök á Hlégarðstúni og í kjölfarið fá börnin að prófa sirkusáhöld.

Opið hús verður á slökkvistöðinni við Skarhólabraut þar sem hægt verður að skoða bíla, tæki og búnað slökkviliðsins og Bjössi brunabangsi mætir að sjálfsögðu á svæðið.

Íbúar og gestir eru hvattir til að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum um allan Mosfellsbæ.

Njótum þess að vera saman, upplifa og gleðjast í okkar heimabæ – Í túninu heima.

 

Birt í Mosfellingi 27. ágúst 2026.