Börn eru besta fólk

gyda_mosfellingur

Gyða Vigfúsdóttir leikskólastjóri lætur af störfum á Reykjakoti í ágúst eftir að hafa starfað þar í rúm 19 ár.

Leikskólinn Reykjakot er 70 barna leikskóli og tók til starfa í mars 1994. Skólinn er staðsettur í náttúrulegu umhverfi svo stutt er að fara með börnin í fjallgöngur, berjamó eða með nesti í Reykjalundarskóg.
Gyða Vigfúsdóttir leikskólastjóri hóf störf á Reykjakoti árið 1998. Hún lætur nú af störfum sökum aldurs og segir framtíðina óráðna en það sem hún taki sér fyrir hendur verði örugglega eitthvað skemmtilegt.

Gyða er fædd í Reykjavík 1. júlí 1950. Foreldrar hennar eru þau Inga Jenný Guðjónsdóttir, húsmóðir og handavinnukona, og Vigfús Árnason, hárskeri og kennari. Gyða á tvö systkini, þau Grétu og Árna Guðjón.

Laugavegurinn var stór ævintýraveröld
„Ég ólst upp í Laugarneshverfinu og síðar á Laugaveginum. Laugarneshverfið bauð upp á mikið frelsi fyrir börn og þar var margt hægt að bralla þó maður væri ungur að árum. Ég man að fyrsta barnapíustarfið mitt var að passa hana Láru litlu þó ég væri bara 6 ára og hún 2 ára.
Laugavegurinn var í mínum huga stór ævintýraveröld þar sem alltaf var eitthvað spennandi að gerast. Þegar ég var 10 ára flutti fjölskyldan í Kópavoginn, pabbi hafði byggt þar hús og það má segja að við höfum verið nokkurs konar frumbyggjar.“

Fékk þjálfun í kjötvinnslu
„Ég fór í sveit 8 ára að Flatey á Mýrum í Hornafirði. Það var mitt annað heimili öll sumur þangað til ég var 16 ára. Þá tók ég mér frí eitt sumar til að vinna í Kjötbúðinni Borg. Það var mjög lærdómsríkur tími þar sem ég fékk frábæra þjálfun í kjötvinnslu.
Þegar ég lít til baka þá man ég sérstaklega vel eftir bók sem mér var gefin, Börn eru besta fólk, eftir Stefán Jónsson. Þar kom staðfestingin á því að börn eru fólk en ekki bara börn. Ég lít alltaf á þá bók sem fyrsta skrefið í áttina að því að verða leikskólakennari.“

Öðlaðist mikla reynslu á Silungapolli
„Ég byrjaði mína skólagöngu í Laugarnesskóla, þar sem mér þótti gott að vera. Síðan lá leiðin í Austurbæjarskóla, Kópavogsskóla og að lokum í verknám í Lindargötuskóla. Ég held að mér sé óhætt að segja að skólagangan hafi verið svona upp og ofan, enda höfðum við Ásta vinkona nóg að gera við barnapössun.
Eftir útskrift fórum við að vinna á barnaheimilinu að Silungapolli og unnum þar í þrjú ár. Þar öðlaðist ég mikla reynslu og kynntist vel þeim erfiðleikum sem fátækir foreldrar stóðu frammi fyrir á þeim tíma.“

Gestur hjá bankastjórum bæjarins
Gyða giftist Heiðari Woodrow Jones árið 1968 aðeins 18 ára gömul. Þau eignuðust tvö börn, Karenu Jenný og Vigfús Þór. Gyða og Heiðar skildu árið 1979 eftir 11 ára hjónaband.
„Eftir skilnaðinn má segja að nýr kafli hafi hafist í lífi mínu. Til að styrkja fjárhaginn fór ég að vinna í Stáliðjunni þar sem ég saumaði áklæði utan um stóla.
Örlögin höguðu því svo til að nokkru síðar flutti ég til Seyðisfjarðar þar sem ég tók þátt í að reka steypustöð. Mitt hlutverk fólst aðallega í því að sjá um fjármál og var ég tíður gestur hjá bankastjórum bæjarins.“

Eignaðist marga vini á Tjaldanesi
„Eftir Seyðisfjarðarævintýrið flutti ég aftur suður og settist á skólabekk í Fóstruskóla Íslands, enda hef ég allt frá barnæsku haft mikinn áhuga á börnum. Eftir útskrift 1987 fór ég að vinna á skóladagheimilinu Ástúni. Um svipað leyti kynntist ég Knúti Birgissyni eiginmanni mínum. Hann starfar nú sem forstöðumaður á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Við giftum okkur 1992 og höfðum skömmu áður flutt í Mosfellsbæinn.
Á þessum tíma hafði ég fengið vinnu sem deildarstjóri og varð síðar forstöðumaður Tjaldanesheimilisins í Mosfellsdal. Ef það er eitthvað sem mér finnst jafn gefandi og að vinna með börn, er það fatlað fólk. Ég eignaðist marga vini á Tjaldanesi og hitti suma þeirra reglulega, þá eru fagnaðarfundir.“

Lánsöm að hafa frábært starfsfólk
„Ég byrjaði að vinna á Reykjakoti árið 1998, sem þá var undir stjórn Maríu skólasystur minnar. Hún hafði innleitt Hjallastefnuna sem Margrét Pála er höfundur að. Þegar María hætti árið 2000 tók Margrét Pála við stjórn skólans og ég varð aðstoðarleikskólastjóri. Ég lærði mikið af Möggu Pálu og í gegnum árin höfum við hist reglulega og borið saman bækur okkar.
Ég tók við leikskólastjórastöðunni árið 2002. Á þeim árum sem ég hef stjórnað skólanum hef ég verið svo lánsöm að hafa alltaf frábæru starfsfólki á að skipa, sem hefur lagt sitt af mörkum til að gera Reykjakot að framsæknum vinnustað.“

Prjónuðum fyrir heimilislausa
„Við höfum í sameiningu tekist á við stór verkefni eins og stofnun Varmárdeildarinnar og Leirvogstunguskóla og eins höfum við unnið mörg þróunarverkefni.
Samfélagsverkefnin eru nokkur, t.d. prjónuðum við fyrir Mæðrastyrksnefnd og heimilislausa. Við tókum þátt í verkefni með leikskólanum að Hlaðhömrum sem við kölluðum Jólakassar fyrir börn á Íslandi. Síðast en ekki síst hafa Reykjakotssystur farið í námsferðir til útlanda.“

Allur matur eldaður frá grunni
„Nýjustu verkefnin okkar eru ekki síður spennandi. Heilsueflandi leikskóli á vegum Embættis landlæknis er verkefni, sem aðstoðarleikskólastjórinn minn, Hildur Helga Sævarsdóttir, sér um.
Það var mikill happafengur að fá hann Einar H. Ólafsson til starfa í eldhúsið okkar. Hann er mikill eldhugi og eftir að hann byrjaði var hafist handa við að endurskoða alla matseðla, hvort þeir uppfylltu hollustuþarfir barnanna. Ég tók þá ákvörðun að leyfa sköpunarkrafti og athafnaþrá Einars að njóta sín. Í dag er allur matur eldaður frá grunni og hugað að hollustu.
Að síðustu má nefna verkefni sem heitir Garðrækt með Ömmu náttúru og er í umsjá Jóhönnu B. Magnúsdóttur.“

Framtíðin óráðin
Nú er komið að tímamótum og lætur Gyða af störfum í ágúst sökum aldurs. „Ég hef átt gott og farsælt samstarf við stjórnsýslu bæjarins og mig langar að nota tækifærið og þakka sérstaklega Birni Þráni fyrir allan hans stuðning og traust sem hann hefur sýnt mér alveg frá upphafi.
Ekki má gleyma að þakka öllum dásamlegu börnunum sem hafa verið hjá okkur í gegnum tíðina því án þeirra væri Reykjakot ekki sá yndislegi staður sem hann er. Við fylgjumst grannt með afrekum þeirra í lífinu og erum sannfærð um að þegar eitthvert þeirra skarar fram úr er það allt uppeldinu á Reykjakoti að þakka,“ segir Gyða og brosir. „Ég er enn sannfærðari en nokkru sinni að börn eru besta fólk.
Framtíð mín er óráðin en það sem ég tek mér fyrir hendur verður örugglega eitthvað skemmtilegt.“

Mosfellingurinn 29. júní 2017
Myndir og texti: Ruth Örnólfs