Frjálsar íþróttir í Mosfellsbæ – Fjölíþróttaklasi
Ég hef búið og starfað í Mosfellsbæ
í áratugi. Þegar Ungmennafélag
Íslands hélt frjálsíþróttahátíð sína
hér árið 1990 var bærinn með
metnaðinn og aðstöðuna til að
vera gestgjafi. Varmársvæðið var í
fullu fjöri. Frjálsíþróttir voru hluti
af lífi bæjarins.
Árið 2007 opnaði ég Eldingu —
líkamsrækt og styrktarþjálfun — í Íþrótta
miðstöðinni að Varmá. Ég lagði í tug millj
óna króna fjárfestingu og veitti almenningi
þjónustu í samræmi við samning við bæ
inn. Í 16 ár gekk þetta vel — engar kvart
anir, engin erindi til íþrótta- og tómstunda
nefndar. Allt gekk eins og í sögu og ungir
sem aldnir nutu þjónustunnar.
Árið 2023 var samningnum slitið án þess
að rétt ferli væri fylgt og án þess að 12 mán
aða uppsagnarfrestur væri virtur. Ég þurfti
að selja tækin á slikk. Ég varð fyrir tjóni að
ósekju. Verst var tjónið og missir þess fólks
sem naut þjónustunnar, hreyfingarinnar.
En þetta snýst ekki um mig. Þetta snýst
um hvað gerðist í kjölfarið: Frjálsar íþróttir
í Mosfellsbæ voru í raun lagðar niður.
Kraftlyfting hvarf úr bænum. Ólympískar
lyftingar horfnar. Aðstaða sem tók áratugi
að byggja upp — horfin. Við Mosfellingar
teljum okkur búa heilsueflandi bæ, ekki
satt?
Frjálsar íþróttir henta öllum aldurs
hópum — unglingum, fullorðnum og öldr
uðum. Þær eru lýðheilsa í bestu
mynd. Þær eru þess eðlis að rjúfa
einangrun allra aldurshópa, auka
aðgengi að fjölbreyttum íþróttum
og virkri hreyfingu. Það fyrsta sem
við þurfum að gera er að endur
reisa þá aðstöðu sem fór forgörð
um — þannig að frjálsar íþróttir
eigi aftur heima í Mosfellsbæ.
Til viðbótar við það vil ég beita mér fyrir
stofnun Fjölíþróttaklasa — húss þar sem
stundaðar eru fjölmargar íþróttir undir
einu þaki: box, ólympískar lyftingar, klifur,
padel og margt fleira.
Lifandi samfélagsmiðstöð með raun
verulegri þjónustu þar sem allir hópar eiga
rétt á aðgengi — börn, fullorðnir, fatlaðir
og eldri borgarar. Slíkur klasi gæti vel verið
staðsettur landi Blikastaða, í samráði við þá
aðila sem þar þróa landið. Á Blikastöðum
rís brátt nýtt hverfi og þörfin fyrir lifandi
samfélagsrými er augljós. Það er því brýn
þörf á íþróttum fyrir alla.
Mosfellsbær gat hýst frjálsíþróttahátíð
UMFÍ árið 1990. Við getum gert mun betur
í dag — ef vilji er til þess. Þetta er hluti af
því sem ég er að berjast fyrir. Fylgdu því
eftir með mér. Kjóstu Miðflokkinn – Fyrst
og fremst fyrir heilsuna.
Hjalti Árnason – Skipar 3. sæti á lista
Miðflokksins í Mosfellsbæ




