90 ára afmæli Klébergsskóla
Afmælishátíð var haldin í Klébergsskóla á Kjalarnesi laugardaginn 19. október en þá voru liðin 90 ár frá því að hann var vígður. Á afmælisdaginn var opið hús í skólanum og mættu fjölmargir gestir í heimsókn.
Nokkur félagasamtök á Kjalarnesi stóðu að byggingu hússins árið 1929 sem var einnig hugsað sem samkomuhús sveitarinnar og var Klébergsskóli í röð fyrstu heimavistarskóla á landinu.
Klébergsskóli er því elsti grunnskólinn í Reykjavík en það sýnir að það var framsýnt fólk í skólamálum á Kjalarnesi og er enn í dag. Á Kjalarnesi er starfræktur leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaheimili og félagsmiðstöð ásamt íþróttamiðstöð undir einum hatti.
Í tilefni stórafmælisins var afmælisþema í skólanum vikuna fyrir afmælið þar sem nemendur unnu að ýmsum verkefnum tengdum 90 ára afmælinu, fræðsla í bland við skemmtun. Gestir og gangandi gátu skoðað afrakstur þemavinnunnar og upplifað margt skemmtilegt í öllum stofum skólans. Að sjálfsögðu var glæsileg afmælisterta í boði fyrir alla.