Einn maður – eitt atkvæði
Það er grundvallarréttur fólks í lýðræðisríki að geta gengið til kosninga og að allir geti með atkvæði sínu haft jafnan rétt til að hafa áhrif á hverjir og hvers konar stjórnvöld komast til valda.
Allt frá því þéttbýli fór að myndast á Íslandi hefur því verið mismunað með hlutfallslega minna atkvæðavægi en í dreifbýli. Fjöldi þingmanna á hvern íbúa hefur því lengi verið mismikill milli kjördæma og þess vegna hafa áhrif kjósanda í kosningum verið mismikil eftir því hvar þeir búa. Nú má þessi munur því vera allt að tvöfaldur; íbúar í Norðvesturkjördæmi geta haft um tvöfalt fleiri þingmenn á hvern íbúa heldur en íbúar í Suðvesturkjördæmi og hefur hver íbúi því um tvöfalt meiri áhrif á úthlutun þingsæta á Alþingi.
Við í Viðreisn teljum það forgangsatriði að stjórnarskránni verði breytt til þess að tryggja að atkvæðisréttur allra landsmanna verði jafn, óháð búsetu þeirra.
Fötluð kona í Hafnarfirði á að hafa sama rétt og trillukarl fyrir austan, fyrirtækjaeigandi fyrir vestan á að hafa sama atkvæðisrétt og kennari í Kópavoginum. Jafnréttið er ósköp einfalt.
Andstæðingum þessa brýna lýðræðismáls hefur oft og tíðum tekist að gera þetta að baráttu höfuðborgarsvæðis gegn landsbyggðinni. Sú barátta á að vera óþörf.
Þingmenn Alþingis eiga að bera hag landsins alls fyrir brjósti og öllum ætti að vera ljóst að sterkt höfuðborgarsvæði þarf á sterkri landsbyggð að halda. Skipting og forgangsröðun verkefna ríkisins þarf að vera tekin á jafnræðisgrundvelli, með þarfir allra kjördæma að leiðarljósi og sífelldum áminningum um að ekkert þeirra megi sitja eftir við útdeilingu sameiginlegra gæða.
Við megum ekki vera hrædd við kerfisbreytingar. Íhaldssemin hefur ávallt og mun áfram passa upp á sig og sína. Því kerfisbreytingar eru ógnun við valdhafa er sækja völd sín til slíks ójafnræðis sem felst í misvægi atkvæðisréttar.
Viðreisn er ekki þannig flokkur og því munum við einhenda okkur í kerfisbreytingar sem auka réttlæti og jafnrétti á Íslandi, öllum til hagsbóta.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Skipar 1. sæti á lista Viðreisnar
í Suðvesturkjördæmi