Hlöðver Máni skrifar: JÓLIN MEGA EKKI BYRJA SVONA SNEMMA
Já, sko, jólin eru byrjuð.
Það er kominn nóvember.
Sem er auðvitað allt of snemmt.
Ég er mjög fastur á því að jólin eigi ekki að byrja fyrr en í desember, helst ekki fyrr en svona 10. desember, því annars missir þetta alla merkingu.
Ég keypti samt fyrsta jólakonfektið í október en það telst ekki með því það var á tilboði.
Maður verður að geta aðskilið trúarhátíð og hagstæð innkaup.
Verslanirnar voru meira að segja byrjaðar að setja upp jólaseríur, jóladót og jólasveina í október, meðan laufin voru enn á trjánum.
Það er ekki eðlilegt.
Maður á ekki að geta rakað lauf og skreytt jólatré sama daginn. Náttúran verður að fá að klára eitt verkefni áður en verslunin byrjar á því næsta.
Ég er því algjörlega á móti því að jólin byrji svona snemma.
En ég verð samt að viðurkenna að þetta er svolítið notalegt.
Það er erfitt að vera á móti jólunum þegar maður stendur með kaffi, mandarínu og konfekt undir ljósaseríu.
Þá mýkist maður.
En prinsippið stendur.
Svo eru jólalögin farin af stað.
Ég er alfarið á móti jólalögum í nóvember.
Það eru takmörk.
Ég hef reyndar sjálfur hlustað aðeins á þau síðustu daga en eingöngu til að staðfesta hversu ótímabært þetta er.
Maður þarf stundum að hlusta á sama lagið sex sinnum til að geta dæmt það af sanngirni.
Og jólasveinarnir eiga alls ekki að mæta fyrr en í desember.
Þrettán dagar fyrir jól. Þetta er einfalt kerfi og hefur virkað lengi.
Við erum reyndar með jólasveina á Alþingi allan ársins hring en þeir eru í jakkafötum og því telst það ekki með.
Ég vil annars alls ekki blanda pólitík inn í jólin.
Nema hún gefi góðan brandara.
Svo kvartar fólk yfir því að jólin séu orðin of löng.
Það er alveg rétt.
Jólin eiga að vera stutt, falleg og sérstök.
Helst svona einn og hálfan mánuð.
Kannski tvo ef nóvember verður leiðinlegur.
Þannig að ég legg til að við hættum þessari vitleysu og færum jólin aftur á sinn stað.
Í desember.
En fyrst seríurnar eru komnar upp finnst mér auðvitað algjör óþarfi að taka þær niður aftur.
Það væri sóun.
Og ef maður er byrjaður að kaupa konfekt er best að klára það áður en það skemmist.
En jólin eru samt ekki byrjuð.
Það verður að vera einhver regla.
En ég elska samt Mosó mest.




