Vinir Mosfellsbæjar og ofurþétting á Blikastöðum
L-listi Vina Mosfellsbæjar er skipaður fólki með ólíkar stjórnmálaskoðanir en eina sameiginlega hugsjón: Að setja hagsmuni Mosfellsbæjar í fyrsta sæti, óháð flokkspólitík og flokkslínum sem oft eru ákveðnar langt fyrir utan bæjarmörkin okkar.
Stóru málin – eins og Sundabraut, Borgarlína og stóraukin þétting byggðar – hafa gríðarleg áhrif á lífsgæði okkar. Við teljum að hagsmunir íbúa eigi að vega þyngra en hagnaðarvon verktaka eða hugmyndafræði sem á betur við í miðborg Reykjavíkur en í okkar græna bæ.
Vinir Mosfellsbæjar setja stórt spurningarmerki við fyrirhugaða uppbyggingu í Blikastaðalandi. Samkvæmt gögnum er verið að leggja til að þéttleiki byggðar verði aukinn úr 20,3 íbúðum á hektara upp í allt að 48,5, allt eftir því hvernig þéttleiki er reiknaður. Við viljum skilgreina þéttinguna sem ofurþéttingu í okkar sveitarfélagi og teljum of mörgum spurningum vera enn ósvarað sem snúa að innviðum og umferðarmálum. Eins teljum við ólíklegt að unga fólkið okkar geti farið í fyrstu kaup þar sem um dýrt húsnæði verður að ræða meðal annars vegna umfangsmikilla bílakjallara sem eiga að vera lausn við bílastæðavanda.
Fulltrúi Vina Mosfellsbæjar var sá eini sem greiddi atkvæði með beiðni um undirskriftasöfnun fyrir íbúakosningu um þéttleika í Blikastaðalandi í bæjarstjórn núna í mars, hinum 10 bæjarfulltrúum fannst íbúum ekki treystandi til þess að taka afstöðu í svona stóru máli. Vinir Mosfellsbæjar telja að það sé einmitt í stórum málum sem íbúar eiga að geta sagt sína skoðun. Þeir geta gert það 16. maí.
Deiliskipulagi 1. áfanga Blikastaðalands er vel unnið og margt gott í því en það er þó ýmislegt í því sem bendir til að hagur landeiganda hafi vegið þyngri en hagur íbúa. Þetta segjum við vegna þess að ekki liggur fyrir áætlun um uppbyggingu innviða í samræmu við uppbyggingu íbúða og því fylgir ýmis vandi. Skóla-, leikskóla- og frístundahúsnæði í Mosfellsbæ í dag er þegar fullnýtt og því ekki hægt að bæta við börnum og unglingum í starfið. Það sama á við um íþróttastarf í bænum en þar er hver fermeter fullnýttur og ef börn og unglingar eiga áfram að komast í skipulagt íþróttastarf þá þarf að ráðast í uppbyggingu í Blikastaðalandi sem tryggir aðgengi. Sundlaugar sveitarfélagsins sem gegna lykilhlutverki þegar kemur að lýðheilsu íbúa bæði líkamlega og andlega eru við þolmörk og eru engin áform tengd uppbyggingu í Blikastaðalandi að bæta úr þeirri aðstöðu. Kynningarfundir um skipulag og uppbyggingu voru að stórum hluta stýrt og fjármagnað af landeigendum.
Við höfum áhyggjur af því hvernig samgöngumál hafa verið að þróast á höfuðborgarsvæðinu og viljum eiga þátt í því þróa betri lausnir. Áhrif mikillar uppbyggingar sem eru í farvatninu í Blikastaðalandi, á Keldum, í Úlfarsárdal og á Ártúnshöfða gerir ráð fyrir íbúafjölda í kringum 45.000 – 50.000. Eina sem við vitum er að það kemur kannski Borgarlína og kannski samgöngubætur, „kannski“ hjálpar okkur ekki neitt.
Vinir Mosfellsbæjar er óháður listi sem þorir að spyrja. Við erum ekki bundin flokksaga, aðeins hagsmunum þínum sem íbúa.
Verum Vinir
Árni Jónsson skipar 1. sæti á lista Vina Mosfellsbæjar.




