Vandað skipulag og náttúrutengsl – lykill að góðum bæjarbrag
Bæjarbragur er sú heildarupplifun sem fólk hefur af bæjarfélagi sínu. Hann mótast af samspili byggðar, mannlífs, byggðarsögu, samfélagsbreytingum og gildismati kynslóða. Segja má að skipulagsmál vegi þungt hvað varðar mótun á bæjarbragnum, en ekki síður tengslin við náttúruna.
Í umræðu um þróun nýrra hverfa er oft rætt um byggðarþéttleika og þá stundum haldið fram að aukinn þéttleiki hafi neikvæð áhrif á lífsgæði og bæjarbrag. Rannsóknir gefa hins vegar til kynna að þéttleiki einn og sér, er í raun ekki lykilbreyta. Það sem íbúar leggja mest upp úr eru gæði skipulagsins: mannlegur skali, þar sem hæð og umfang bygginga eru í samræmi við upplifun fólks, góð almenningsrými, fjölbreytni í byggð og sterk tengsl við nærumhverfi og náttúru. Það sem virðist helst draga úr jákvæðri upplifun í nýjum hverfum er mikil einsleitni, bæði í byggðarmynstri og félagslegri samsetningu.
Sterk tenging við náttúruna kemur aftur og aftur fram sem eitt mikilvægasta gæðamat fólks á búsetu. Græn svæði, trjágróður, vatn, göngu- og hjólaleiðir og tengsl við sitt nærlandslag stuðla að aukinni vellíðan, betri heilsu og sterkari staðartengingu. Í Mosfellsbæ, með sín fell og grænu svæði, hafa þessi náttúrutengsl alltaf verið sérstaða bæjarins og órjúfanlegur hluti af bæjarbragnum.
Blikastaðaland er eitt stærsta þróunarsvæði Mosfellsbæjar og þar gefst tækifæri til að móta nýjan bæjarhluta þar sem skipulag, samfélag og náttúra mynda samfellda heild. Mikilvægt er að byggja upp blandaða íbúðabyggð með fjölbreyttum húsagerðum og búsetuformum, svo ólíkir hópar geti fundið sér stað. Slík fjölbreytni eflir samfélagið, styrkir undirstöður öflugrar nærþjónustu og stuðlar að auknum tengslum milli bæjarbúa. Umhverfisvernd og sjálfbærni verða leiðarljós í skipulagi svæðisins. Græn rými, vistvænar lausnir og góðar tengingar innan hverfis eiga að mynda burðarás byggðarinnar. Með mannlegum skala, vönduðum almannarýmum og sterkum náttúrutengslum verða til lifandi og aðlaðandi hverfi.
Góður bæjarbragur verður ekki til með húsum einum saman heldur í samspili fólks, rýma og náttúru. Með vönduðu skipulagi sem byggir á fjölbreytni og náttúrulegum gæðum mun Mosfellsbær halda áfram að þróast og stækka í takt við þann einstaka bæjaranda sem bæjarbúar kunna að meta og vilja varðveita.
Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og aðalmaður í skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, og Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, efnaverkfræðingur, skipa 3. og 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.




