Uppbygging á Blikastöðum
Málefni uppbyggingar á Blikastöðum var fyrirferðarmikið í störfum bæjarstjórnar í janúar.
Annars vegar viðauki 1 við uppbyggingarsamning sem var gerður árið 2022. Og hins vegar breyting á deiliskipulagi 1. áfanga og tillaga að breytingu á rammahluta aðalskipulags sem var samþykkt að senda út til kynningar og auglýsingar. Núverandi bæjarstjórn tók við upphaflega samningnum undirrituðum og lít ég svo á að okkar hlutverk sé að tryggja hagsmuni bæjarins áður en næstu skref eru tekin.
Viðauki 1
Viðauki 1 er nauðsynlegur svo hægt sé að samþykkja skipulag á Blikastöðum. Hann er rétt skref í þá átt að bærinn fái sanngjarnar greiðslur fyrir þá uppbyggingu sem mun eiga sér stað á svæðinu. Það skiptir verulegu máli að útgjöld og greiðslur haldist í hendur við uppbyggingarhraða, að greitt sé fyrir uppbygginguna á svipuðum tíma og framkvæmdir eru hafnar. Þessi viðauki snýst ekki bara um fjármuni heldur líka um skyldur hvors aðila um sig. Þar þarf Mosfellsbær að huga vel að verkefnastjórnun og eftirliti. Þetta er hlutverk umhverfissviðs sem er ekki mannað í dag til að mæta þeim fjölda byggingarleyfa sem þarf að afgreiða og hafa eftirlit með framkvæmdum. Þetta er atriði sem þarf að vinna vel úr.
Ég hefði kosið að íbúar hefðu verið upplýstir fyrr um tilurð viðauka 1 og kom þeirri skoðun minni á framfæri við formann bæjarráðs og bæjarstjóra í samtölum á milli jóla og nýárs.
Íbúakosning – eða ekki?
Uppbygging á Blikastöðum er stórt mál, enda er þetta stærsta uppbyggingarverkefni í sveitarfélaginu fyrr og síðar. Þetta mál er umdeilt og á að vera það, það er ekki sjálfsagt mál að tvöfalda sveitarfélagið. Því skiptir öllu máli að íbúar fái að skoða gögn málsins, mæta á fundi, spyrja spurninga, fá svör og mynda sér skoðun. Hópur íbúa kallaði eftir íbúakosningu um deiliskipulag á Blikastöðum. Við heyrðum þessar raddir og hlustuðum á þær. Okkur finnst sjálfsagt mál að íbúar komi að ákvarðanatöku um skipulagið. Á þessum tímapunkti töldum við ekki tímabært að leggja til íbúakosningu, þar sem endanlegar niðurstöður eftir auglýsingu og ábendingar liggja ekki fyrir.
Okkar sýn
Deiliskipulagið sjálft er vel unnið og greinilegt að mikið hefur verið lagt í hönnun svæðisins. Það breytir þó ekki þeirri skoðun okkar að þéttleiki byggðarinnar er of mikill. Við höfum haldið þeim sjónarmiðum á lofti frá árinu 2022. Við höfum einnig rætt um umferðarþungann sem verður óhjákvæmilega við Baugshlíðina þegar allir halda til vinnu á svipuðum tíma og er það verkefni komandi bæjarstjórna að tala fyrir umferðarbótum Mosfellinga. Í kringum svo stórt verkefni þarf vandaða stjórnsýslu og góð vinnubrögð sem má ekki hvika frá og ljóst að mikið mun mæða á komandi skipulagsnefndum.
Það sem skiptir svo mestu máli í þessu stóra verkefni er að gott samráð verði haft við íbúa svo upplýst umræða eigi sér stað. Hún verður vonandi til þess að sátt geti skapast um framtíð svæðisins. Enn standa út af mörg mál sem þarf að leysa og fleiri viðaukar sem eiga eftir að koma til bæjarstjórnar. Við tökum hvert skref fyrir sig og metum það með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Við hvetjum íbúa eindregið til að kynna sér deiliskipulag fyrir 1. áfanga á Blikastöðum.
Dagný Kristinsdóttir
Bæjarfulltrúi Vina Mosfellsbæjar




