Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
Mjög mörgum þykja málefni umhverfismála vera komin í einkennilegan farveg. Nú hafa þau verið sameinuð við skipulagsmál eins furðlegt sem það kann að vera og mynduð ein nefnd. Ekki verður séð af fundargerðum að mikið fari fyrir umhverfismálum, fremur að þau séu ekki lengur til. Þetta er gjörbreyting frá fyrri tímum.
Að vorjafndægri 21. mars 2007 var Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar stofnað. Stofnfundurinn var í Listasal Bókasafns Mosfellsbæjar og voru stofnfélagar yfir 30 að tölu. Þar á meðal voru þrír í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og var einn þeirra sitjandi bæjarstjóri og annar nokkru síðar. Félagið var þverpólitískt enda var engin ástæða að draga neitt annað inn á fundi félagsins en það sem varðaði tilgang þess, umhverfi Mosfellsbæjar. Engin félagsgjöld voru innheimt og var það kannski ein ástæðan fyrir að þetta félag dagaði uppi.
Fyrsti viðburður á vegum UNM var fuglaskoðun 5. maí þá um vorið undir leiðsögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings og ljósmyndara. Langflestir stofnfélagar voru með í för ásamt ýmsum öðrum gestum. Var dvalið á nokkrum stöðum við Leirvoginn góða stund, gengið eftir ströndinni og hugað að fuglum. Jóhann er einn af okkar allra bestu fuglafræðingum og miðlaði miklum fróðleik sem allir nutu vel.
Á þessum degi kom upp sú hugmynd að reisa fuglaskoðunarhús og valdi Jóhann síðar staðinn fyrir það við Langatangann og veitti okkur ýmsa ráðgjöf. Mosfellsbær kostaði öllu til byggingarinnar en því miður má fuglaskoðunarhúsið muna fífil sinn fegurri eftir að illa uppaldir götustrákar hafa brotist inn í það og valdið miklum spjöllum. Svo virðist sem enginn áhugi bæjaryfirvalda sé að lagfæra og verður að telja það til mikils vansa.
Við fengum oft ýmsa náttúrufræðinga til að halda fræðslufundi á veturna. Fjallað var vítt og breitt um málefni tengd Mosfellsbænum á sviði náttúrufræði og umhverfismála. Var m.a. fjallað um jarðfræði, dýralíf og einn fundurinn var helgaður utanvegaakstri en félag eitt, Slóðavinir, telja sig hafa tilkall til gamalla hestaleiða og vega einkum á Mosfellsheiði. Þessir fundir fóru allir fram á bókasafninu. Þar sem fjárhagur félagsins var alltaf þröngur þá fengum við nokkur eintök af Sögu Mosfellsbæjar eftir sveitunga okkar þá Bjarka Bjarnason og Magnús Guðmundsson til að launa fyrirlesurum.
Félagið átti gott samstarf við önnur félög eins og Skógræktarfélagið á svonefndum Skógardegi í Hamrahlíð og einnig í „Í túninu heima“ sem hefur lengi verið árviss atburður undir lok ágústmánaðar. Þá tók UNM þátt í svonefndri Hitaveitugöngu í samstarfi við Sögufélagið meðfram Varmá og inn að Suður-Reykjum.
Þetta félag lognaðist því miður út af vegna veikinda og óviðráðanlegra ástæðna formanna sem ekki verða raktar nánar. Þetta mikilvæga félag þarf að endurvekja og heiti ég á alla áhugasama unga Mosfellinga um náttúrurfræði og umhverfismál að taka sig til að hefja það aftur til vegs og virðingar. Ég sem fyrrum formaður þess vil vera með í því starfi!
Hefjum umhverfisvitund aftur til vegs og virðingar í fallega sveitafélaginu okkar, Mosfellsbæ. Bæjarfélagið okkar á allt gott skilið!
Guðjón Jensson, eldri borgari, tómstundablaðamaður, rithöfundur og leiðsögumaður og fyrrverandi formaður Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar
arnartangi43@gmail.com




