Tómatur selur aukahluti fyrir iPhone-síma
Einar Karl Sigmarsson er ungur og efnilegur Mosfellingur. Hann er 15 ára nemandi í 10. bekk Lágafellsskóla. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann stofnað sitt eigið fyrirtæki sem heitir Tómatur.
„Ég er að selja gæðahulstur fyrir iPhone- síma á mjög góðu verði, ég er með nokkrar týpur og nokkra liti. Þetta byrjaði með því að pabbi minn sem rekur pítsastaðinn Shake&Pizza fór til Dubai. Hann kynntist þar framleiðanda sem framleiðir meðal annars þessi hulstur. Ég fékk svo tækifæri á að hefja viðskipti við hann og hóf innflutning á þessum hulstrum,“ segir Einar Karl.
Frí heimsending í Mosó
„Ætlunin er að auka úrvalið smátt og smátt með ýmsum aukahlutum fyrir síma. Ég hef fengið góð viðbrögð en ég hef aðallega verið að kynna fyrirtækið í gegnum Facebook og Instagram. Best er að senda mér pantanir í gegnum Facebook. Hulstrin kosta 1.000 kr. og það er frí heimsending hér í Mosfellsbæ. Hringurinn aftan á hulstrunum er gerður til að geta haldið á símanum með annarri hendi en einnig má nota hann sem stand svo síminn geti staðið á borði.
Ég er búinn að tryggja mér lénið tomatur.is og er að vinna að gerð heimasíðu. Hugmyndin er líka að útbúa Snapchat-reikning og auglýsa þar. Þetta hefur gengið mjög vel en ég fékk fyrstu sendingu í janúar.
Ég er nú þegar búinn að læra helling á þessu, bæði varðandi samskipti við framleiðandann og ýmislegt varðandi innflutning og fleira. Mér finnst gaman að kynnast ferlinu og þetta er góð byrjun ef þig langar í bissneslífið,“ segir Einar Karl sem á greinilega framtíðina fyrir sér í viðskiptalífinu.