Sókn í upplýsinga- og tæknimálum í skólunum
Haustið 2017 hófst vinna við að undirbúa sókn í upplýsinga- og tæknimálum í leik- og grunnskólum Mosfellsbæjar. Sú vinna byggir á niðurstöðum vinnu með kennurum vorið 2017 sem kölluð hefur verið Vegvísirinn.
Vegvísirinn er eitt af leiðarljósum fræðslu- og frístundasviðs í þeirri umbreytingu á tækniumhverfi grunnskólanna sem nú stendur yfir. Í Vegvísinum koma skýrt fram óskir frá kennurum um endurskoðun fyrirkomulags á upplýsinga- og tæknimálum skólanna.
Fyrstu skrefin þegar verið tekin
Forsenda tækniframfara í skólunum er fartölvuvæðing kennara og fagfólks, fjölgun spjaldtölva fyrir nemendur og að bæta tækniumhverfi skólanna almennt.
Þann 23. janúar sl. voru stigin fyrstu skrefin í yfirstandandi sókn til eflingar upplýsinga- og tæknimálum í skólum bæjarins þegar grunnskólunum voru afhentar fyrstu persónulegu fartölvurnar fyrir kennara og fagfólk. Allir grunnskólar bæjarins munu fá nýjan tölvubúnað í ár auk þess sem spjaldtölvukostur fyrir nemendur verður aukinn í takt við stærð skólanna. Leikskólar bæjarins munu einnig taka þátt í fartölvuvæðingu skólanna.
40 milljónir lagðar til
„Við hlustum og tökum mark á því sem við okkur er sagt. Í fjárhagsáætlun ársins í ár eru lagðar til 40 milljónir til verkefnisins sem eru umtalsverðir fjármunir,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. „Í dag leggjum við formlega í hann og stígum fyrstu skrefin í sókn á sviði upplýsinga- og tæknimála í skólum bæjarins.
Meginforsenda þess að upplýsinga- og tæknimál séu ofarlega á baugi í skólastarfi er að starfsmenn skólanna hafi greiðan aðgang að vinnutölvum og að vinnuumhverfið sé þannig úr garði gert að tæknimál skólanna styðji við breytta kennsluhætti og kröfur nútímans,“ segir Haraldur. „Það er stefna bæjaryfirvalda að grunnskólar bæjarins séu í fremstu röð á sviði upplýsinga- og tæknimála.“
Þrjár stoðir verkefnisins
Verkefnið byggir á þrem stoðum. Í fyrsta lagi eflingu tæknibúnaðar skólabygginganna. Í öðru lagi að bæta aðbúnað kennara og nemenda á sviði upplýsinga- og tæknimála. Og í þriðja lagi að veita stuðning við innleiðingu á fjölbreyttari kennsluháttum.
Í samstarfi við skólana verður unnið að mótun stefnu og framtíðarsýnar á sviði upplýsinga- og tæknimála. Í stefnunni verður meðal annars fjallað um kostnað og útskiptingu á tæknibúnaði, þróunar- og nýbreytniverkefni á sviði upplýsinga- og tæknimála, samvinnu skóla og fræðslu og ráðgjöf til kennara og nemenda.