Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund

19. september, 2026

Reykjalundur í Mosfellsbæ

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar
þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir
aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin
getur stuðlað að. Húsakostur og nær öll aðstaða þarfnast úrbóta og afar aðkallandi að við
bregðumst við. Endurhæfum Reykjalund!

Fram undan er mikilvæg söfnun á landsvísu sem snýr að Reykjalundi og því magnaða starfi
sem þar er unnið. Samtökin Hollvinir Reykjalundar í samvinnu við RÚV munu föstudaginn 2.
október 2026 standa fyrir mikilvægri landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts
Reykjalundar. Meðal annars verður safnað fyrir endurbyggingu á sjúkraþjálfunarálmu.
Húsakostur Reykjalundar er úr sér genginn og viðhaldsþörf er mikil. Fjölmörgum rýmum
hefur verið lokuð vegna bágs ástands húsnæðis og það hamlar starfseminni. Þörf er á
skjótum úrbótum.

Endurhæfum Reykjalund
Endurhæfum Reykjalund er yfirskrift þessarar mikilvægu herferðar sem hverfist um
þjóðarátak í landssöfnuninni sem verður í beinni útsendingu á RÚV og í símaveri Sýnar
föstudagskvöldið 2. október. Vonin er sú að ákallið nái til þjóðarinnar, fyrirtækja og
stofnana landsins. Með samstilltu átaki styðjum við Reykjalund í því að styðja áfram öll þau
sem þurfa á endurhæfingu aõ halda í framtíðinni. Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum
Reykjalund.

Nokkrar staðreyndir um starfsemi Reykjalundar:
– Reykjalundur í Mosfellsbæ er stærsta og ein mikilvægasta endurhæfingarmiðstöð
landsins.

– Reykjalundur hefur starfað frá miðri síðustu öld og stutt fólk út í lífið á ný.
– Á ári hverju njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi og öðlast þar með
bætt lífsgæði, færni og betri vinnu- og sjálfsbjargargetu eftir áföll eða veikindi.
– Mikil samfélagsleg verðmæti felast í starfseminni á Reykjalundi og endurhæfing er
þjóðhagslega hagkvæm.
– Reykjalundur er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins þó starfsemin sé ekki á
fjárlögum ríkisins.
– Reykjalundur er rekinn á óhagnaðardrifnum grunni og greiðir ekki arð.
– Reykjalundur starfar samkvæmt lögum um veitta heilbrigðisþjónustu og í gegnum
þjónustusamning við Sjúkratryggingar íslands, sem greiðir fyrir endurhæfingu hvers
skjólstæðings en ekki húsnæðiskostnað.
– Reykjalundur er í eigu SÍBS og er rekinn fyrir sjálfsaflafé, m.a. tekjum af happdrætti SÍBS,
sem fara þó minnkandi ár frá ári.

 

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/09/reykjalundur.png 984 1686 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-09-19 21:20:132026-09-19 21:21:17Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: Tækniskólinn er meira en velkominn í Mosfellsbæ Link to: Tækniskólinn er meira en velkominn í Mosfellsbæ Tækniskólinn er meira en velkominn í Mosfellsbæ Link to: Viðskipti eru mín ástríða Link to: Viðskipti eru mín ástríða Viðskipti eru mín ástríða
Scroll to top Scroll to top Scroll to top