Opið bréf til verðandi bæjarfulltrúa

Matthías Ólafsson

Uppbygging á Blikastaðalandi

Í tilefni þess að ný bæjarstjórn verður brátt kjörin og frambjóðendur móta um þessar mundir áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil, vill Foreldrafélag Lágafellsskóla beina sjónum þeirra að aðkallandi innviðavanda sem er í uppsiglingu vegna yfirvofandi uppbyggingar á Blikastaðalandi.
Á sama tíma og ber að fagna áframhaldandi vexti samfélagsins þarf að leggja ríka áherslu á að þróun íbúðabyggðar eigi sér stað samhliða uppbyggingu innviða fyrir grunnskólabörn.

Reynsla Mosfellsbæjar af uppbyggingu Helgafellshverfis hlýtur að teljast víti til varnaðar. Þar var ráðist í umfangsmikla íbúðauppbyggingu án þess að félagslegir innviðir fylgdu með frá upphafi. Afleiðingin varð sprenging í nemendafjölda í grunnskólum Mosfellsbæjar utan Helgafellshverfis, sem hafa þurft að glíma við langvarandi plássleysi, notkun færanlegra kennslustofa og mikið álag á starfsfólk og nemendur.
Þá er álag á íþróttahús og sundaðstöðu í Mosfellsbæ þegar slíkt að aðgengi nemenda er verulega takmarkað. Búast má við að uppbygging á Blikastaðalandi muni auka verulega á þann vanda enda þar sem engin ný íþróttahús eða sundlaugar eru á teikniborðinu.
Fyrirliggjandi skipulagsáætlanir benda því miður til þess að sagan sé að endurtaka sig; að hagsmunir grunnskólabarna verði aftur undir í kapphlaupinu við uppbyggingu íbúðar­húsnæðis með ófyrirséðum afleiðingum fyrir skólastarf í Lágafellsskóla og daglegt líf nýrra Mosfellinga Blikastaðalands.

Foreldrafélag Lágafellsskóla skorar á frambjóðendur að tryggja að uppbygging íbúðarhúsnæðis haldist í hendur við uppbyggingu skóla og annarra nauðsynlegra innviða.
Við köllum eftir raunhæfri áætlun um hvernig verja skuli hagsmuni nemenda og starfsfólks grunnskóla Mosfellsbæjar svo gæðum skólastarfs verði ekki fórnað fyrir hraða uppbyggingu í Blikastaðalandi

Mosfellsbær er meira en bara þyrping húsa á útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Hann er hið félagslega umhverfi sem við bjóðum börnunum okkar upp á. Sýnum í verki að við höfum lært af reynslunni og gerum betur við uppbyggingu Blikastaðalands.

Fyrir hönd Foreldrafélags Lágafellsskóla
– Matthías Ólafsson