Okkar Mosó verður Krakka Mosó

Menningar- og lýðræðisnefnd Mosfellsbæjar hefur samþykkt að leggja áherslu á þátttöku barna í verkefninu Okkar Mosó árið 2025 og fær verkefnið því nafnið Krakka Mosó að þessu sinni. Framkvæmdin á verkefninu í ár verður í samvinnu við skóla Mosfellsbæjar og ungmennaráð.
Krakka Mosó 2025 er lýðræðis- og samráðsverkefni krakka og Mosó um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til framkvæmda eða verkefna á þrem opnum svæðum í bænum. Svæðin eru Ævintýragarðurinn, Stekkjarflöt og svæði við Rituhöfða.
Hvatt verður til þess að hugmyndir tengist því að gera Mosfellsbæ betri, skapa eitthvað nýtt, efla hreyfingu krakka og hafa jákvæð áhrif á umhverfi krakka og annarra íbúa til útivistar og samveru, bættrar lýðheilsu eða aðstöðu til leikja- og skemmtunar.

Efla rödd barna og unglinga
Með verkefninu Krakka Mosó er lögð sérstök áhersla á að virkja nemendur á mið- og unglingastigi grunnskóla bæjarins í aðkomu að mótun framtíðar bæjarins.
Markmiðið er að efla rödd barna og unglinga og þátttöku þeirra þegar kemur að lýðræði og samfélagsmálum. Það er í samræmi við áherslur í verkefninu Barnvænt sveitarfélag, sem Mosfellsbær vinnur að innleiðingu á í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Verkefninu Barnvænu sveitarfélagi er einmitt ætlað að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda þeirra og unnið samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allri ákvarðanatöku, stefnu og vinnu innan sveitarfélagsins.

Framkvæmd verkefnisins
Krakka Mosó fór af stað með kynningum fyrir nemendur í skólum 22.–23. apríl, þar sem fræðsla var veitt um lýðræði og þátttöku.
Eftir það fór fram hugmyndasöfnun í bekkjum skólanna þar sem nemendur fá tækifæri til að leggja fram þær hugmyndir sem þeir telja mikilvægar fyrir þrjú opin svæði í bænum.
Eftir úrvinnslu hugmynda verður farið í kynningu meðal nemenda á þeim tillögum sem fara til atkvæðagreiðslu. Kjördagur verður svo 20. maí, þar sem nemendur fá tækifæri til að greiða atkvæði um þær hugmyndir sem verða framkvæmdar.
Atkvæðagreiðslan fer fram á vandaðan hátt, þar sem tryggt verður að allir geti greitt atkvæði í leynilegri kosningu, og fulltrúar nemenda taka þátt í talningu atkvæða.

Fjármögnun og útfærsla
Samkvæmt fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 verður 20 milljónum króna úthlutað til að framkvæma þau verkefni sem krakkar og ungmenni í Mosfellsbæ leggja til eftir atkvæðagreiðslu í verkefninu Krakka Mosó.
Verkefnið verður útfært í nánu samstarfi við þá fjóra skóla í Mosfellsbæ sem eru með mið- og unglingastig, þ.e.a.s. Varmárskóla, Kvíslarskóla, Lágafellsskóla og Helgafellsskóla.
Markmið Krakka Mosó 2025 er ekki einungis að efla þátttöku barna og ungmenna, heldur einnig að gefa börnum tækifæri til að taka virkan þátt í ákvarðanatökuferlum sem varða bæjarfélagið þeirra og að þjálfa þau í lýðræðislegum vinnubrögðum. Áhersla verður lögð á að nemendur nýti eigin aðferðir til að leggja fram tillögur t.d. myndir, teikningar og fleira.