Nýtt stemningslag að fæðast
Það er einhver undiralda í gangi í Mosfellsbænum núna. Við erum að spila í bestu deildum landsins nánast daglega og það er byrjað að vaxa hár á formanninn Geira Slæ,“ segir Steindi Jr.
„Það er allt að sjóða upp úr af stemningu, svo við ákváðum að henda í nýtt lag, tileinkað Mosfellsbæ og Aftureldingu… og Pizzabæ. Við Mosfellingar eigum nokkur geggjuð stuðningsmannalög og það var kominn tími til að bæta við flóruna.
Lagið kemur út á næstunni og munum við að sjálfsögðu frumflytja það í Mosó, henda í partý og rölta svo saman á leikinn.“
Lagið væntanlegt á næstu vikum
„Við munum hreinlega ekki eftir svona stemningu síðan við vorum um tvítugt, en þá kom einmitt Mosó út sem er spilað í hvert skipti sem Afturelding er að keppa, og við vildum bara hlaða í annað eins lag.
Grípa stemninguna, setja þetta dæmi í leiðslu. Og við erum líka bestir að rappa og hinir eru bara labbakútar. Þó við séum fertugir.“
Ásgeir Orri gerir lagið með þeim Steinda Jr. og Dóra DNA og verður spennandi að heyra útkomuna. Lagið er væntanlegt á allra næstu vikum.
Pizzabær, enn að skrifa söguna.
Og tökum uppskriftina af kryddbrauðinu með í gröfina…