Nýr oddviti kynntur hjá Samfylkingunni

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi.
Nýr oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ er Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur, sem setið hefur sem varabæjarfulltrúi á líðandi kjörtímabili.
Anna Sigríður Guðnadóttir, sem var oddviti flokksins í síðustu kosningum og sitjandi bæjarfulltrúi á líðandi kjörtímabili, er í heiðurssæti listans.
„Þessi glæsilegi listi fléttar saman reynslu og ferskum vindum. Það er mér heiður að vera fyrirliði í svo flottu liði. Verkefnið framundan er að kynna þann árangur, stefnuna áfram vegin, og afla okkur trausts kjósenda til að við getum haldið áfram á þeirri braut.” segir Ólafur Ingi, nýr oddviti.

Framboðslisti S-lista
1. Ólafur Ingi Óskarsson
2. Guðný Maja Riba
3. Ómar Ingþórsson
4. Auður Einarsdóttir
5. Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson
6. Elín Eiríksdóttir
7. Sigurður Óli Karlsson
8. Viktoría Magnúsdóttir
9. Þórarinn Snorri Sigurgeirsson
10. Þóra Sigrún Kjartansdóttir
11. Magnús Hlynur Haraldsson
12. Kristín María Ingimarsdóttir
13. Kári Freyr Kane
14. Halla Halldórsdóttir
15. Þyrnir Hálfdán Þyrnisson
16. Þóra Hermannsdóttir Passauer
17. Guðbjörn Sigvaldason
18. Þórunn Ísfeld
19. Ragnar Gunnar Þórhallsson
20. Kristín Sæunnar Sigurðardóttir
21. Jónas Sigurðsson
22. Anna Sigríður Guðnadóttir


Ólafur Ingi Óskarsson

Áfram gakk, meiri velferð og mannvænt umhverfi
Samfylkingin hefur verið hluti af farsælum meirihluta þetta kjörtímabil. Við lok þess tíma er gott að líta um öxl og rifja upp öll þau góðu mál sem við höfum komið í verk. Nærtækast er að minnast á átak í velferðarmálum og forvarnarverkefnið „börnin okkar“. Einnig hefur verið mikið um nýframkvæmdir, þrátt fyrir mjög erfitt vaxtaumhverfi. Umbætur hafa verið gerðar á stjórnkerfi bæjarins og unnin fjárhagsleg áhættugreining sem eykur öryggi í fjárfestinum og rekstri. Og þrátt fyrir stór verkefni hafa fjárhagsáætlanir meirihlutans staðist og skilað rekstrarafgangi öll árin eftir hallarekstur fyrri ára. Nú þurfa kjósendur fljótlega að gera upp við sig, hvort þeir vilja halda áfram á sömu braut, eða beygja af leið. Við í Samfylkingunni erum alveg skýr, við viljum áfram gakk, meiri velferð, mannvænt umhverfi og áframhaldandi aukinn stuðning við börn og unglinga.