Mikilvægt að hlusta á fólkið í bænum
Miðflokkurinn hefur staðfest framboðslista sinn fyrir komandi kosningar. Hann er skipaður fjölbreyttum hópi með víðtæka reynslu úr atvinnulífi og samfélagi, sem eiga það sameiginlegt að vilja leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar bæjarins.
Í fyrsta sæti er Sveinn Óskar Sigurðsson, viðskipta- og hagfræðingur, og í öðru sæti Ingibjörg Einarsdóttir, tannsmiður og aðjúnkt við Háskóla Íslands.
Miðflokkurinn leggur áherslu á samstöðu og ábyrgð í rekstri bæjarins. Sérstök áhersla er lögð á skóla- og velferðarmál, þar sem þarfir barna, fjölskyldna og eldri borgara eru í forgrunni. Þá vill flokkurinn sjá skynsamlega og ábyrga uppbyggingu í skipulags- og samgöngumálum, þar sem gætt er að fjárhag bæjarins og langtímahagsmunum íbúa.
Framboðslisti M-lista
1. Sveinn Óskar Sigurðsson
2. Ingibjörg Einarsdóttir
3. Hjalti Árnason
4. Sóley Sævarsdóttir Meyer
5. Kristján Davíð Sigurjónsson
6. Karl Gissur Þórisson
7. Nói Þrastarsson
8. Sara Hafbergsdóttir
9. Ólafur Vignir Þórarinsson
10. Eyþór Bjarki Benediksson
11. Aldís Dröfn Ingvarsdóttir
12. Bjarki Þór Þórisson
13. Pétur Þór Ásgeirsson
14. Helga Diljá Jónsdóttir
15. Sigurjón Kristjánsson
16. Jóhannes Birgir Jóhannesson
17. Mikael Árni Bergmann Þorsteinnsson
18. Linda Björk Stefánsdóttir
19. Hlynur Hilmarsson
20. Friðbert Bragason
21. Sigurrós K. Indriðardóttir
22. Þorlákur Ásgeir Petursson
Til framtíðar – með traustri stjórn og skýrri sýn
„Mosfellsbær er samfélag þar sem við eigum að geta sameinast um það sem skiptir mestu máli: velferð barna og fjölskyldna, virðingu fyrir eldri borgurum og ábyrga uppbyggingu til framtíðar. Við þurfum að taka ákvarðanir af skynsemi, þar sem jafnvægi er milli þjónustu, uppbyggingar og fjárhags bæjarins.
Ég legg áherslu á trausta stjórn, hagkvæman rekstur og skilvirka stjórnsýslu sem þjónar íbúum fyrst og fremst. Það er mikilvægt að hlusta á fólkið í bænum og byggja ákvarðanir á raunverulegum þörfum, ekki skammtímahugsun. Með samstöðu og ábyrgum vinnubrögðum getum við styrkt Mosfellsbæ enn frekar og skapað samfélag þar sem allir fá tækifæri til að dafna.“




