Meiri Mosó

Uppbygging í landi Blikastaða er stórt verkefni sem mun vonandi hafa jákvæð áhrif á samfélagið í Mosfellsbæ, að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra Mosfellsbæjar

Uppbyggingaráform á landi Blikastaða eiga sér áratugalanga sögu, enda er landið einstaklega vel í sveit sett sem framtíðarbyggingarland Mosfellsbæjar.
Blikastaðahverfið í núverandi mynd hefur verið í undirbúningi um nokkurn tíma og hófst formlega með erindi landeigenda í upphafi árs 2020. Í framhaldinu átti sér stað mikil rýnivinna stjórnsýslunnar og samningagerð sem lauk árið 2022. Á þessu kjörtímabilið hefur svo verið unnið að því að raungera áformin og deiliskipulagsgerð hófst í árslok 2023 eftir samráð við íbúa um aðalskipulag fyrr það ár.
Nú er tillaga að deiliskipulagi fyrsta áfanga hverfisins í opnu samráði. Regína segir að samráðið sem fór fram um fyrstu útgáfu skipulagsins árið 2024 hafi verið mikilvægt og að athugasemdir frá íbúum hafi margar ratað inn í deiliskipulagið sem er kynnt núna, auk þess sem unnið er að frekari umferðartengingum í hverfið frá Korpúlfsstaðavegi. Regína segir mikilvægt að Mosfellingar eigi samtal um framtíðarþróun bæjarins og hvetur þá til þess að kynna sér tillöguna að deiliskipulaginu í skipulagsgátt, á vef bæjarins, við bókasafnið eða með því að mæta á þá opnu fundi sem bærinn stendur fyrir. Þá sé hægt að skila inn athugasemdum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar til og með 27. febrúar.

Regína Ásvaldsdóttir

„Nú þegar við kynnum deiliskipulagstillögu og breytingar á aðalskipulagi vegna uppbyggingarinnar á Blikastöðum skiptir máli að við förum vel yfir það sem stendur til og sýnina sem liggur að baki. Í allri hönnun byggjum við á því sem gerir Mosfellsbæ að því sem hann er, lífsgæðunum hérna, samfélaginu, nándinni við náttúruna, líflegu en nærandi umhverfi og kannski aðeins annan takt en í sveitarfélögunum í nágrenni við okkur. Við viljum meira af því sem er vel heppnað í Mosfellsbæ – Meiri Mosó.“

Landbúnaðarsaga Blikastaðalands er löng og jörð Blikastaða stór. Eftir því sem byggð þéttist á höfuðborgarsvæðinu hurfu gömlu landbúnaðartúnin sem umkringdu borgina, ýmist véku þau fyrir húsakosti eða þróuðust frekar til útivistar og íþrótta.
,,Sá hluti landsins sem fer hér undir íbúðabyggð er aðeins brot af upprunalegu jörðinni. Íbúar Mosfellsbæjar hafa hingað til og munu áfram njóta einstakra svæða landsins sem eigendur þess hafa fært samfélaginu,“ segir Regína. ,,Hamrahlíðarskógur í landi Blikastaða er algjör náttúruperla sem skógræktarfélagið hefur unnið ötullega að auk þess sem Blikastaðanes nýtist nú undir golfvöllinn og reið- og göngustíga. Gert er ráð fyrir því í skipulagstillögunum að tengja allt saman með stígagerð þegar landið verður byggt að fullu.“

Fjölbreyttari og sjálfbærari Mosfellsbær
Regína segir mikilvægt að bærinn stækki í sjálfbærum vexti. Of hröð uppbygging geti valdið vaxtarverkjum og því sé mikilvægt að þjónustan fylgi með. Í nýlega uppfærðum samningi á milli Mosfellsbæjar og Blikastaðalands er rennt styrkari stoðum undir uppbygginguna með hærri greiðslum sem koma fyrr í ferlinu.
Þá leggur hún áherslu á að uppbyggingin skapi ekki aðeins betri fjárhagslegan grundvöll fyrir sveitarfélagið heldur sé hún líka mikilvæg forsenda þess að Mosfellsbær geti orðið sjálfbærari sem bæjarfélag og samfélag. „Hér á að vera hægt að sækja sem mesta þjónustu í heimabyggð, ekki bara grunnþjónustu heldur líka sinna flestum daglegum þörfum. Til langs tíma viljum við líka að það séu fleiri möguleikar til að starfa í heimabyggð og að Mosfellingar geti notið lífsins og lífsgæðanna hér í bænum sem mest.“

Hún segir að fram undan séu umtalsverðar breytingar sem styðji við þessa sýn. „Sundabraut mun hafa áhrif á umferðina í gegnum bæinn og inn í borgina. Borgarlínan mun gera hið sama og verður vonandi raunhæfur valkostur.
Hún segir afar mikilvægt að þessi þróun gangi eftir. „Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað beinlínis í akstursleið okkar Mosfellinga að miðborginni og enn meira er fyrirhugað. Við þekkjum það öll hvernig er að keyra frá Mosfellsbæ á vissum tímum dags inn til Reykjavíkur.
Burtséð frá uppbyggingu í Mosfellsbæ, á Blikastöðum eða annars staðar, er það sameiginlegt verkefni allra sveitarfélaganna og fleiri aðila að leysa, með því að fjölga bæði leiðum og valkostum fyrir fólk til að sækja vinnu og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu öllu. Öflugri, fjölbreyttari og sjálfbærari Mosfellsbær er klárlega mjög jákvætt skref og hluti af slíkri lausn.“

Grænt hverfi
,,Það sem er óvenjulegt við skipulagið á Blikastaðalandi er að við hönnunina var byrjað að kortleggja náttúruna sem fyrir er og græn svæði teiknuð inn í skipulagið. Byggðin er svo mótuð að þeim gæðum, svo að grænu svæðin séu í fyrirrúmi og allir njóti aðgengi að náttúru og birtu,“ segir Regína.

Hún segir að vissulega verði byggðin þéttari að meðaltali en hefðbundin hverfi í Mosfellsbæ, og mestur þéttleiki verði við Borgarlínustöð og næst Vesturlandsvegi. Hverfið verði blandað og fjölbreytt og muni bjóða valkosti sem ættu að henta flestum. Næst golfvellinum og Þrastarhöfða er hins vegar sérbýlishúsahverfi sem rímar við byggðina í Þrastarhöfða. Þarna er því verið að svara ákalli um íbúðabyggð sem er fjölbreytt og fyrir alla hópa samfélagsins. Mosfellsbær hefur lagt áherslu á að við öll sérbýli séu tvö til þrjú bílastæði á hverja eign og að lágmarki eitt bílastæði á íbúð í fjölbýli. Þá verða einnig bílastæði í götum.

„Blikastaðaland hefur að mínu mati alla burði til að verða einstakt, fjölbreytt og spennandi hverfi. Um leið skiptir máli að við rýnum þessi áform vel, með opnum huga og komum með hugmyndir um hvernig hverfið getur orðið enn betra, því þetta svæði, líkt og aðrir hlutar Mosfellsbæjar, á að vera staður þar sem fólki líður vel og við öll getum verið stolt af,“ segir Regína að lokum.

Nánari upplýsingar um 1. áfanga Blikastaðalands má nálgast á mos.is