Líffræðileg fjölbreytni og fallegar þúfur
Í sambandi við þróun mannkyns á jörðu eru alvarlegar hættur á ferðinni. Mikið er talað um loftslagsbreytingar og varla nokkur maður getur neitað lengur að þarna eru alvarlegar hættur á ferðinni fyrir flest allar lífverur.
Í heimsmarkmiðum segir einn þáttur um mikilvægi þess að vernda og viðhalda líffræðilegri fjölbreytni, hún er undirstaða þess að vistkerfin geti starfað eðlilega. Búsvæðaeyðing, loftslagsbreytingar, ágengar framandi tegundir, ofnýting og mengun eru fimm helstu ógnir við líffræðilega fjölbreytni í heiminum. Óskandi væri að við menn gerum okkur loksins grein fyrir því að án eðlilega starfandi vistkerfa er áframhaldandi líf á jörðu ekki hægt. En mannfólkið á það oft til að vilja breyta umhverfinu eftir sínum hugmyndum um hvað sé fallegt og nytsamlegt. Lögmál náttúrunnar og eðlileg starfsemi vistkerfa vilja því miður oft gleymast.
Hér í Mosfellsbænum eru til falleg plögg sem segja ýmislegt um verndun náttúrunnar, mikilvægi heilbrigðs umhverfis og vel starfandi vistkerfa. Íbúar eiga að geta notið þess að vera úti í fallegu og náttúrulegu umhverfi.
Snúum okkur nú að skipulag bæjarins og tillögu um breytingu golfvallarsvæðisins. Þannig á að búa til 3 nýjar brautir fyrir neðan Tanga- og Holtahverfi. Þetta svæði er í dag mjög fjölbreytt sem snertir gróður og dýralíf, svolítið skemmtilega „villtur“ birkiskógur, grenilundir og fallegar þúfur. Sumir vilja kalla þetta „órækt“. Svæðið er auðvitað ekki óraskað land, en samt margfalt öflugra hvað líffræðilega fjölbreytni snertir en það sem er áætlað að framkvæma í sambandi við golfbrautir. Þessar snöggslegnu grasflatir sem golfararnir þurfa eru mjög einsleitnar og fjölbreytni næstum engin. Sumum finnst í lagi að ryðja þessum ljótu þúfum burt og fá í staðinn eitthvað „snyrtilegt“. Náttúran er bara ekki snyrtileg heldur þróast eftir sínum eigin forsendum ef hún fær tækifæri til þess.
Hvernig samræmast áform um fyrirhugaðar nýjar golfbrautir því að hlúa að og varðveita líffræðilega fjölbreytni í bænum okkar, þó það væri einungis á afmörkuðum svæðum? Það verður fróðlegt að heyra í frambjóðendum í aðdraganda kosninganna.
Úrsúla Jünemann,
áhugamaður un útivist og náttúruvernd




