Leitað að ljósmyndum frá upphafsárunum

Næsta sumar verða liðin 40 ár síðan byrjað var að spila golf á Hlíðavelli, en vígslumót vallarins var haldið 28. júní 1986.
Af því tilefni eru feðginin Georg Tryggvason og Brynhildur Georgsdóttir að rifja upp og skrásetja þessi fyrstu skref í golfstarfi í Mosfellsbæ. Georg er annar af frumherjum klúbbsins en hann og félagi hans Örn Höskulds­son lögðu grunn að golfstarfinu og eru í dag heiðursfélagar klúbbsins.

Fyrstu árin spilað með hrífu og skóflu
Þeir sem í dag njóta þess að spila golf á fallegum og grónum Hlíðavelli eiga líklega erfitt með að gera sér í hugarlund þá umbreytingu sem átti sér stað fyrstu árin. Eftir að samið var um leigu á landi Hlíðavallar árið 1983 var hafist handa við vallargerðina.
Georg tók að sér vera formaður vallarnefndar og stýrði framkvæmdinni fyrstu árin. Hann segir það hafa verið áhrifamikla stund þegar fyrsti hópur sjálfboðaliða mætti niður á hið nýleigða svæði, með hrífur og skóflu í hönd, tilbúinn að hefjast handa. „Okkur féllust eiginlega hendur þegar við horfðum yfir auðnina og upp í hugann komu orðin úr kvæði Matthíasar: „Hvar skal byrja? Hvar skal standa?“ En svo var ákveðið að byrja á að grjóthreinsa svæði sem síðar varð fimmta flöt. Og eftir það var þetta einfaldlega unnið blett fyrir blett, braut fyrir braut og flöt fyrir flöt.“
Fjölmargar hendur lögð hönd á plóg, allar hendur voru mikilvægar og jafnt fullorðnir sem börn lögðu sitt af mörkum. Betur verður farið yfir söguna í frásögn sem verður gefin út í tengslum við 40 ára afmælið.

Sjálfboðaliðar og uppbyggingarstarf
Til að glæða söguna lífi er leitað að ljósmyndum frá fyrstu uppbyggingarárunum. Myndum af moldarvinnu, gróðursetningu, tækjunum, húsunum, fólkinu, börnunum, fyrstu sveiflunum o.s.frv.
Ef einhver á slíkar myndir eða veit af þeim í albúmum ættingja er viðkomandi beðinn um að senda skilaboð í gegnum netfangið brynhildurgeorgs@gmail.com.