Jöfn tækifæri og skynsamleg forgangsröðun í Mosfellsbæ
Kæri Mosfellingur.
Nú líður að sveitarstjórnarkosningum 2026 og ég skipa 3. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ. Mosfellsbær er gott samfélag með marga styrkleika, en það eru einnig mikilvæg mál sem hafa setið á hakanum og þarf að taka af festu.
Í mínum huga er eitt þeirra aðgengi fatlaðra að íþróttum og hreyfingu. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að þessi hópur hafi ekki jafnan aðgang að líkamsrækt og íþróttastarfi í bæjarfélaginu.
Sveitarfélaginu ber skylda til að tryggja öllum íbúum jöfn tækifæri – þar á meðal þeim sem þurfa á sértækum úrræðum að halda.
Sama á við um einstaklingsíþróttir, svo sem frjálsar íþróttir. Á síðustu árum hefur Mosfellsbær lítið sem ekkert látið að sér kveða á stærstu mótum landsins. Það er áhyggjuefni og bendir til þess að aðstaða og uppbygging á þessu sviði sé ekki nægjanleg. Það er ekki boðlegt að uppbygging íþróttamannvirkja taki fyrst og fremst mið af ákveðnum greinum á meðan aðrar sitja eftir.
Sérstaka athygli vekur að ráðist er í kostnaðarsamar framkvæmdir, svo sem lýsingu á Varmárvelli samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, á sama tíma og aðstaða fyrir frjálsar íþróttir er ekki byggð upp með þeim hætti að þar sé hægt að halda lögleg mót eða stærri keppnir. Hér þarf að forgangsraða með skynsemi og jafnræði að leiðarljósi.
Þá er mikilvægt að staldra við og spyrja gagnrýninna spurninga um stór verkefni, svo sem borgarlínuna. Hver verður raunverulegur kostnaður fyrir samfélagið okkar og hvaða áhrif hefur hann til lengri tíma? Við verðum að gæta að fjárhag bæjarins og taka ákvarðanir sem standast bæði skammtíma- og langtímahagsmuni íbúa.
Mosfellsbær á að vera samfélag þar sem allir fá notið sín – óháð aðstæðum eða íþróttavali. Með sanngirni, ábyrgð og skýrri forgangsröðun getum við náð því markmiði.
Áfram Mosó.
Hjalti Árnason




