Í aðdraganda páska

Elín María Jónsdóttir

Þar sem páskarnir eru að ganga í garð og margir komnir í páskafrí velti ég því fyrir mér hvort að vitneskjan um það af hverju við höldum páska sé að fjara út. Hver var þessi Jesú, hvernig tengist hann páskunum og hvar koma páskaeggin inn í söguna?
Lengst af var kristin trú nokkuð fyrirferðamikil í skólastarfi en með tímanum hafa áherslur breyst og í dag er fræðsla um kristni og önnur trúarbrögð hluti af samfélagsgreinum. Ein skýringin á þessari þróun er sú að skólinn á að vera fyrir alla og ekki styðja eina trú umfram aðra og vera þar af leiðandi hlutlaus gagnvart trúarbrögðum.
Sú viðleitni er mikilvæg og á fullt erindi í skólastarf. En á sama tíma má velta fyrir sér hvort við séum farin að stíga of varlega til jarðar. Þegar skólar og leikskólar eru farnir að sleppa kirkjuheimsóknum og takmarka umfjöllun um uppruna hátíðanna er hætt við að merking þeirra dofni. Hátíðarnar verða þá fyrst og fremst frí frá daglegu amstri.
Að fræða börn um kristna trú og halda í hefðir í tengslum við páska er ekki það sama og að aðhyllast kristna trú og iðka hana. Þegar börn skilja af hverju við höldum jól og páska fá þau ekki aðeins innsýn inn í trúarhugmyndir heldur líka í söguna. Þau læra að skilja betur hvernig samfélagið hefur þróast og hvaðan ákveðin gildi og venjur eiga rætur sínar að rekja. Slík þekking getur hjálpað þeim að setja nútímann í samhengi og styrkt tengsl þeirra við fortíðina.
Fræðsla um eigin menningararf verður ekki til þess að minni virðing sé borin fyrir öðrum. Þvert á móti getur hún aukið skilning og umburðarlyndi fyrir öðrum sjónarmiðum og að læra um ólíkar hefðir.
Í skólastarfi er vel hægt að fjalla um uppruna hátíða, segja sögur og útskýra merkingu þeirra og fara í kirkjuheimsóknir án þess að gera kröfu um trú eða þátttöku. Þannig er verið að miðla þekkingu.
Með fræðslu verða páskarnir meira en bara frí. Þeir verða tækifæri til að skilja betur menningu okkar, söguna sem mótaði samfélagið og þær hugmyndir sem hafa haft áhrif á líf fólks í gegnum tíðina. Slík þekking getur dýpkað skilning, aukið víðsýni og hjálpað börnum að átta sig á eigin rótum á sama tíma og þau læra að virða fjölbreytileikann.

Elín María Jónsdóttir skipar 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.