Hilmar nýr oddviti með 92%

Efstu fjögur: Hilmar, Jana, Elísabet og Hjörtur.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fór fram laugardaginn 31. janúar.
Hilmar Gunnarsson hlaut yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, 91,9% atkvæða í fyrsta sæti eða 799 atkvæði. Þrettán voru í framboði og kosið var um átta efstu sætin.
1. sæti Hilmar Gunnarsson (799 atkv.)
2. sæti Jana Katrín Knútsdóttir (499 atkv.)
3. sæti Elísabet S. Ólafsdóttir (300 atkv.)
4. sæti Hjörtur Örn Arnarson (487 atkv.)
5. sæti Þórarinn Örn Andrésson (357 atkv.)
6. sæti Ásgeir Sveinsson með (383 atkv.)
7. sæti Magnús Ingi Ingvarsson (456 atkv.)
8. sæti Brynja Hlíf Hjaltadóttir (520 atkv.)

Þakklátur fyrir traustið
„Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt. Síðustu vikur hafa verið virkilega skemmtilegar og þátttakan í prófkjörinu góð. Þetta er ekkert smá byrjunarlið sem við Sjálfstæðismenn erum að stilla upp fyrir vorið og ég er mjög glaður að fá að tilheyra því.
Næst á dagskrá er að bretta upp ermar fyrir kosningarnar í maí. Nú verður fjör,“ segir Hilmar Gunnarsson nýkjörinn oddviti flokksins.