„Heilbrigt og fjölskylduvænt samfélag“
Á félagsfundi fimmtudaginn 26. febrúar var samþykkt tillaga að framboðslista Framsóknar í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí, uppstillingarnefnd hefur unnið að mótun listans frá því í nóvember.
Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann. Annað sæti skipar Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs, í þriðja sæti er Leifur Ingi Eysteinsson tómstunda- og félagsmálafræðingur og í því fjórða er Elín Guðný Hlöðversdóttir rekstrarstjóri.
Framsókn á fjóra bæjarfulltrúa í dag og er í meirihlutasamstarfi með Samfylkingunni og Viðreisn. Halla Karen hefur leitt listann síðustu fjögur ár en nú tekur Sævar Birgisson við keflinu, sem áður var í þriðja sæti listans.
Framboðslisti B-lista
1. Sævar Birgisson
2. Halla Karen Kristjánsdóttir
3. Leifur Ingi Eysteinsson
4. Elín Guðný Hlöðversdóttir
5. Ýmir Örn Hafsteinsson
6. Sandra Dís Bjarnadóttir
7. Kjartan Helgi Ólafsson
8. Matthildur Þórðardóttir
9. Frímann Ægir Frímannsson
10. Bjarni Ingimarsson
11. Vala Garðarsdóttir
12. Hansína Þorbjörg Sólbjartsdóttir
13. Helga Einarsdóttir
14. Ragnar Sverrisson
15. Sigurbjörg Kristmundsdóttir
16. Karlotta Lind Pedersen
17. Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir
18. Þór Gíslason
19. Erlingur Agnarsson
20. Páll Marís Pálsson
21. Ævar Sigdórsson
22. Örvar Jóhannsson
Lýðheilsa og ábyrgur rekstur áfram í fyrirrúmi
„Við mætum til leiks með fjölbreyttan hóp af öflugu fólki sem brennur fyrir málefni Mosfellsbæjar. Sem fyrr verður gleðin áfram í fyrirrúmi hjá okkur, en rauði þráðurinn í okkar áherslum er áfram lýðheilsa, virkt samtal við íbúa bæjarins og ábyrgur rekstur. Við teljum okkur hafa skilað góðu verki á yfirstandandi kjörtímabili og horfum að sjálfsögðu bjartsýn fram á veginn og viljum halda áfram að vinna gott starf fyrir Mosfellsbæ,“ segir Sævar. Halla Karen bætir við að í Mosfellsbæ hafi verið lögð áhersla á vandaða og persónulega þjónustu, öflugt skóla- og velferðarstarf, blómlegt íþrótta- og menningarlíf, trausta innviði og markviss skipulags- og umhverfismál. Sérstök áhersla hafi verið á málefni barna og ungmenna, fjölskyldna þeirra og eldra fólks, með velferð, forvarnir og lýðheilsu að leiðarljósi. „Við höfum sinnt hlutverki okkar af ábyrgð og fagmennsku,“ segir Halla.





