Gylfi Þór er nýr oddviti Viðreisnar
Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Í öðru sæti er Valdimar Birgisson, rekstrarráðgjafi og varaþingmaður Viðreisnar. Í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Í fjórða sæti er Berglind Robertson Grétarsdóttir leikskólastjóri. Í fimmta sæti er Haukur Skúlason, annar stofnenda Indó og fv. framkvæmdastjóri. Í sjötta sæti er Guðrún Þórarinsdóttir, viðurkenndur bókari.
Listinn var staðfestur á félagsfundi Viðreisnar í Mosfellsbæ laugardaginn 28. febrúar.
Viðreisn er í meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn Mosfellsbæjar með Samfylkingunni og Framsóknarflokknum.
Framboðslisti C-lista
1. Gylfi Þór Þorsteinsson
2. Valdimar Birgisson
3. Elín Anna Gísladóttir
4. Berglind Robertson Grétarsdóttir
5. Haukur Skúlason
6. Guðrún Þórarinsdóttir
7. Birgir Örn Birgisson
8. Erla Björk Gísladóttir
9. Óðinn Freyr Baldursson
10. Valgerður Lilja Jónsdóttir
11. Sigurður Unnar Ragnarsson
12. Hera Björk Þórhallsdóttir
13. Kjartan Jóhannes Hauksson
14. Hildur Björg Bæringsdóttir
15. Magnús Sverrir Kristófersson
16. Eyja Eydal Björnsdóttir
17. Reynir Matthíasson
18. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir
19. Helgi Pálsson
20. Ólöf Guðmundsdóttir
21. Bolli Valgarðsson
22. Lovísa Jónsdóttir
Mjög spenntur fyrir komandi verkefni
„Ég er mjög spenntur fyrir komandi verkefni,“ segir Gylfi Þór. „Góð sveitarfélög verða ekki til af tilviljun. Þau verða til þegar fólk með reynslu af raunverulegum verkefnum tekur þátt í ákvörðunum. Það eru mikil tækifæri fyrir Viðreisn í Mosfellsbæ, þar sem við byggjum á góðum grunni núverandi meirihluta. Sveitarfélag er ekki bara skipulag eða fjárhagsáætlun, það er þjónusta við fólk á öllum aldri. Við þurfum sérstaklega að halda áfram að styðja við Börnin okkar, sem er átak í þágu barna og unglinga. Það skiptir líka miklu máli að halda vel utan um uppbyggingarverkefni eins og á Blikastaðalandinu til að halda áfram að byggja upp góð heimili og gott sveitarfélag fyrir íbúa og fyrirtæki án þess að missa það sem gerir bæinn að góðum stað til að búa á: nálægðina, öryggið, náttúruna og samfélagsandann. Mosfellsbær á að vera áfram fjölskyldubær en líka framtíðarbær.“





