Golfvallarmálið
Nú á dögunum, þann 22. janúar, var fundur haldinn í Hlégarði í Mosfellsbæ. Þar voru kynntar hugmyndir um að stækka Hlíðavöll sunnan Leirvogar um 25% til austurs en hann er nú um 52 hektarar að stærð.
Verði sú hugmynd samþykkt hefði það í för með sér verulega breytingu á fremur þröngu og viðkvæmu umhverfi. Þá yrði mikið af vöxtulegum trjám felld og þrengt að allri annarri útivist á þessu svæði, hestamennsku, gangandi, hjólandi og hlaupandi vegfarendum sem og fuglaskoðun.
Leiruvogur er eitt besta fuglaskoðunarsvæði landsins sem þarf fremur að hlúa að en þrengja. Þess má geta að þegar golfvöllurinn var teygður út í Blikastaðanesið á sínum tíma þá var vísvitandi eyðilagt æðar- og kríuvarp að mestu en báðar þessar fuglategundir njóta algjörrar friðunar sem ekki var af einhverjum ástæðum ekki tekið tillit til.
Á fundinum kom fram að golfklúbburinn hefur fengið 65 milljónir frá Mosfellsbæ, fjárhæð sem líklega ekkert annað félag hefur notið sambærilegs stuðnings.
Undirritaður var fyrstur til að grípa orðið þá það var gefið frjálst. Vísaði ég á þessa annmarka með að þröngva stækkun golfvallarins inn á viðkvæmt svæði. Taldi ég að betur væri hugað að öðrum svæðum fyrir golfíþróttina þar sem hún er ekki að neinni annarri eðlilegri landnotkun. Benti ég vinsamlega á Mosfellsheiðina þar sem fáir aðrir hagsmunir fari á svig við golfiðkun sem betur mætti huga að. Þar mætti Golfklúbbur Mosfellsbæjar skipuleggja frábæran og almennilega stóran golfvöll í samstarfi við önnur golffélög á höfuðborgarsvæðinu. Við eigum mjög góða hönnuði á þessu sviði sem væru ábyggilega til í að hanna frábæran golfvöll þar sem engin önnur starfsemi þrengir að.
Óhöpp við golfið hafa því miður orðið á Hlíðavelli og bitnað einkum á hestafólki. Hestar eru mjög viðkvæmir fyrir ýmsum hljóðum sem ekki eru náttúruleg m.a. vegna golfiðkunar. Hestamennska sem er ein tegund útivistar hefur tíðkast á þessu svæði í meira en 11 aldir sem okkur öllum ber að taka tillit til. Þarna um sunnanverðan og innanverðan Leirvoginn var aðalreiðleiðin frá Reykjavík og áleiðis vestur og norður í land um aldir.
Á Mosfellsheiði er vítt til allra átta, víðsýni mikið ekki síður en við ströndina. Líklega væri það helst refurinn sem væri á móti en vel gæti ég trúað að unnt væri að komast að góðu samkomulagi við Tófuvinafélagið.
Fleiri tóku til máls og gætti töluverðrar andstöðu við þessa umdeildu stækkun Hlíðavallar.
Umræður um skynsamlegri landnýtingu og meðferð fjármuna úr sjóðum sveitarfélagsins mætti verða til umræðu í undanfara næstu sveitastjórnakosninga.
Guðjón Jensson
eldri borgari, tómstundablaðamaður, rithöfundur og leiðsögumaður og fyrrverandi formaður Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar
arnartangi43@gmail.com




