Framtíðin byrjar í leikskólanum
Eitt sterkasta leiðarljós meirihluta Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar á kjörtímabilinu hefur verið að bæta aðbúnað barna og ungmenna í Mosfellsbæ og fjölskyldna þeirra. Það hvernig við búum að okkar yngsta og besta fólki segir mikið um hvernig samfélag við byggjum.
Góður leikskóli byggir á mannauðnum sem þar vinnur. Auðvitað skiptir húsnæði, aðstaða og skipulag lóðar mjög miklu máli en fyrst og síðast er það starfsfólkið sem hefur áhrif á líðan barnanna í leikskólunum.
Á kjörtímabilinu voru gerðar breytingar í leikskólunum okkar sem miðuðu að því að bæta starfsumhverfi leikskólanna. Breytingar sem gerðu kleift að innleiða að fullu styttingu vinnuvikunnar hjá starfsfólki og að koma 30 daga orlofi starfsfólks betur fyrir innan starfsársins. Í þeim breytingum voru skráningardagar í kringum jól og áramót fastsettir. Ein stærsta breytingin má segja að hafi verið skráning barna eftir klukkan 14 á föstudögum. Þeir foreldrar sem sækja kl. 14 fá afslátt af leikskólagjöldum en þeir sem þurfa starfa sinna vegna að nýta fullan vistunartíma greiða ekki viðbótargjald vegna þess. Þau börn sem sótt eru fyrr njóta styttingar vinnutímans og þau sem eru lengur njóta meiri rólegheita og næðis í leikskólanum sínum. Þannig má segja að öll börnin hagnist á þessari breytingu. Að auki má benda á að leikskólagjöld í Mosfellsbæ eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
Ánægja foreldra
Þegar gerðar eru umfangsmiklar breytingar, eftir mikla ígrundun og samtöl, er samt óvissa um hvernig þeir sem þjónustunnar njóta taka þeim. Þess vegna er afar ánægjulegt að sjá mikla ánægju með starf leikskólanna í niðurstöðum viðhorfskönnunar Gallup sem birt var í síðustu viku.
Þegar foreldrar sem eiga börn á leikskóla eru spurðir um ánægju sína með leikskólana er niðurstaðan 4,5 af 5 mögulegum sem er afar góður árangur hvort sem litið er til samanburðar við önnur sveitarfélög eða bara sem mælingu í okkar sveitarfélagi.
Það er mjög mikilvægt að spyrja þá sem njóta þjónustunnar á hverjum tíma, hver sem þjónustan er. Á það hefur verið lögð áhersla á þessu kjörtímabili í þeim könnunum sem bæjarfélagið sjálft hefur gert. Þannig fáum við upplýsingar um stöðu einstakra málaflokka, hvað má bæta eða endurhugsa og hvað gengur vel og almenn ánægja er um.
Ein viðhorfsmæling er ekki endastöð. Það er stöðugt og viðvarandi verkefni að huga að því að þjónusta sveitarfélagsins uppfylli þarfir bæjarbúa, ungra sem aldinna. Að þjónustan og umgjörðin um börnin styrki þau til framtíðar. Það er verkefni sem meirihluti B, C og S lista tekur alvarlega.
Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar




