Förum alla leið – samþætt þjónusta í heimahúsum
Við myndun núverandi meirihluta Samfylkingar, Framsóknarflokks og Viðreisnar fyrir bráðum fjórum árum voru velferðarmál í víðum skilningi ofarlega á blaði.
Við vorum meira en tilbúin til að einhenda okkur í þær miklu umbætur sem við vorum sammála um að væru nauðsynlegar og til hagsbóta fyrir okkar góða samfélag. Þar var eitt mikilvægasta verkefnið samþætting þjónustu við aldraða.
Það hafði blasað við lengi, að þjónusta við þá sem þurftu bæði á heimaþjónustu og heilbrigðisþjónustu að halda var ekki nægjanlega góð. Enda komu að þeirri þjónustu fjórir aðilar, allt eftir því hvaða tíma dags eða hvaða vikudaga þjónustan var veitt. Lítil og strjál samskipti voru á milli aðila og yfirsýn engin. Á Hlaðhömrum var á þessum tíma rekin dagdvöl með 9 rýmum. Var það óbreyttur fjöldi frá árinu 2003 þó á sama tíma hefði íbúafjöldi Mosfellsbæjar næstum tvöfaldast.
Lausnin fólst í að samþætta heimaþjónustu og velferðarþjónustu ásamt því að fjölga dagdvalarrýmum verulega. Reykjavík, eitt sveitarfélaga á landinu, bauð upp á samþætta þjónustu á þeim tíma.
Mosfellsbær sótti um í júlí 2023 að vera þátttakandi í tilraunaverkefninu Gott að eldast sem og að fjölga dagdvalarrýmum úr 9 í 15. Umsókn Mosfellsbæjar var samþykkt og bænum boðin þátttaka í tilraunaverkefninu en var synjað um fjölgun dagdvalarrýma, í fyrstu tilraun.
Mosfellsbær réð fljótlega til starfa tengiráðgjafa með tímabundnum stuðningi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Sú ráðning var mikilvæg og algjört lykilatriði hvað varðar velgengni og framgang verkefnisins.
Skrifað var undir tilraunaverkefnið Gott að eldast, Förum alla leið – samþætt þjónusta í heimahúsum, auk stækkunar á dagdvalarþjónustu 1. apríl 2025.
Í dag eru 35 dagdvalarrými í Mosfellsbæ. Samið var við Eir um að sinna allri þessari þjónustu fyrir Mosfellsbæ og Heilsugæslu höfðborgarsvæðisins. Sett var á fót móttöku- og matsteymi en markmið þess er að tryggja samræmt mat á þjónustuþörf og samhæfingu þjónustu milli aðila til að styðja við að einstaklingar geti búið sem lengst heima með viðeigandi stuðningi.
Einnig hefur verið komið á fót heimaendurhæfingarteymi sem sinnir markvissri endurhæfingu í heimahúsum.
Almenn ánægja er með þetta verkefni sem og þjónustuna sem er margfalt betri en áður. Með frábæru starfsfólki og sterkri aðkomu Mosfellsbæjar, Heilsugæslunnar og Eirar hefur verið alveg ótrúlegt að fylgjast með hve hefur miklu hefur verið áorkað á eins einu ári.
Þess má geta að á landsvísu er nú horft til Mosfellsbæjar sem fyrirmyndar, þegar kemur að samþættri heilbrigðis og heimaþjónustu og innleiðingu hennar.
Enn eru tækifæri til að efla og auk enn þjónustu við aldraða íbúa Mosfellsbæjar. Í þeirri vinnu er nauðsynlegt að hlusta á þau sem njóta eiga þjónustunnar og Samfylkingin er tilbúin til þess.
Ólafur Ingi Óskarsson, formaður Velferðarnefndar Mosfellsbæjar og leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ




