Einelti
Þegar einstaklingur verður fyrir endurteknu og langvarandi áreiti sem honum mislíkar og á erfitt með að verjast því er talað um einelti. Ýmsar skilgreiningar eru til fyrir einelti og misjafnt hversu þröngar þær eru en skilgreiningin hér að framan er alla jafna notuð í grunnskólum.
Sænski prófessorinn dr. Dan Olweus sem Olweusaráætlunin er kennd við telur að um einelti sé að ræða þegar einstaklingur verður fyrir endurteknum neikvæðum verknaði yfir ákveðið tímabil af hendi eins eða fleiri aðila. Einelti á sér einnig stað þegar aflsmunur er á milli einstaklinga. Ekki er talað um einelti þegar átök milli jafn sterkra barna er að ræða. Það sem einum þykir einelti þykir öðrum kannski bara vera stríðni þar sem sársaukamörk barna eru misjöfn.
Ábyrgð skóla og annarra
Í lögum um grunnskóla er kveðið á um að þeir skuli hafa heildstæða stefnu um hvernig fyrirbyggja eigi ofbeldi í skólastarfi og að þeir setji sér aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum. Lögin eru nokkuð ítarleg þar sem meðal annars er kveðið á um ábyrgð skólans (kennara og stjórnenda), foreldra og aðila í grenndarsamfélaginu sem starfa með börnum og unglingum. Aðgerðaáætlun gegn einelti er hluti af skólanámskrá og á að kynna sérstaklega eftir því sem þurfa þykir og á að birta opinberlega. (Lög um grunnskóla, nr. 91/2008, 3. mgr. 30. gr.)
Einelti á netinu
Einelti hefur breyst talsvert á síðustu árum frá því að vera augljóst einelti með beinum líkamlegum verknaði og/eða útilokun, í falið einelti eins og í gegnum netið. Samskiptin í gegnum netið geta verið sérstaklega ljót og særandi og auðvelt fyrir geranda að eiga í nafnlausum samskiptum. Því er mikilvægt fyrir foreldra að vera vel vakandi yfir því hvernig barnið þeirra notar netið og kenna þeim að nota netið á réttan hátt. Gott er fyrir foreldra að kanna hvaða reglur gilda um forritin sem barnið þeirra notar og skynsamlegt er að fara eftir reglum útgefenda um aldurtakmörk notenda en of algengt er að börn skrái skrái inn rangt fæðingarár, til dæmis inn á samfélagsmiðla, til að geta stofnað reikning.
Reynsla mín í vinnu með börnum og ungmennum hefur kennt mér hversu rík ástæða er fyrir því að það eru aldurstakmörk á notendur samfélagmiðla því börn hafa einfaldlega ekki þroska til að umgangast samfélagsmiðla á þann hátt sem ætlast er til. Ef allir foreldrar tækju sig saman um að virða aldursreglur myndi það minnka til muna flækjustigið í lífi barnsins.
Börn eru mjög varnarlaus gagnvart einelti því þau gera sér ekki alltaf grein fyrir því að um einelti er að ræða og stundum eru þau hreinlega of hrædd við gerandann til þess að þora að segja frá. Börn reyna líka oft að leyna því að þau séu lögð í einelti því þau skammast sín og vilja ekki valda foreldrum sínum áhyggjum.
Einkenni eineltis
Foreldrar þurfa að vera vakandi fyrir þeim einkennum sem barnið getur sýnt verði það fyrir einelti. Helstu einkenni geta verið að barnið vill ekki lengur fara í skólann, kvartar undan verkjum, er niðurdregið eða virðist óhamingjusamt. Önnur einkenni eru ef það kemur heim óvenju skítugt eða það sér á fötum þess, hlutir fara að týnast og það jafnvel sér á líkama þess án þess að barnið geti gert grein fyrir því af hverju.
Hvað er til ráða?
Ef grunur vaknar um einelti þarf að byrja á því að ræða við barnið og komast að því hvort grunurinn reynist réttur. Ef eineltið á sér stað í skólanum skal strax hafa samband við umsjónarkennara barnsins og í mörgum skólum þarf að tilkynna formlega grun um einelti.
Skynsamlegt getur verið að senda deildarstjóra eða skólastjóra afrit til að allir þeir sem máli skipta séu strax upplýstir um stöðuna. Treysti foreldrar sér ekki til að tilkynna eineltið til umsjónarkennara eða stjórnenda skólans geta þeir haft samband við skólaskrifstofu bæjarfélagsins sem tekur þá við keflinu.
Sé grunur um einelti utan skóla þarf að hafa samband við forráðamenn meints geranda og segja þeim frá upplifun ykkar barns. Oftast kemur það foreldrum á óvart þegar þeir heyra af því að það líti út fyrir að barnið þeirra leggi í einelti en flestir foreldrar vilja strax taka fullan þátt í að leysa vandann. Þótt einelti barna eigi sér stað utan skóla er samt skynsamlegt að upplýsa skólann um stöðuna enda skólinn samofinn lífi barnsins.
Mikilvægi foreldra
Foreldrar eru lykilaðilar í að uppræta og koma í veg fyrir einelti. Án aðkomu þeirra og samstarfsvilja er mjög erfitt að stöðva einelti. Stundum getur verið gott að fá hlutlausan þriðja aðila til að vinna með báðum aðilum en oft geta foreldrar leyst málin sín á milli með börnum sínum þegar unnið er af yfirvegun og skynsemi. Það er öllum til hagsbóta.
________________________
Fjalar Freyr Einarsson,
aga- og uppeldisráðgjafi
www.agastjornun.is