Blikastaðaland – bílastæði og ásýnd í sátt við umhverfið
Deiliskipulagstillaga 1. áfanga Blikastaðalands er nú í auglýsingaferli og markar mikilvægt og metnaðarfullt skref í mótun framtíðarbyggðar á svæðinu.
Skipulagið byggir á þeirri sýn sem lengi hefur einkennt Mosfellsbæ, þar sem náttúran er í forgrunni og uppbygging fellur að landslagi og umhverfi.
Í tillögunni er lögð rík áhersla á vandaðar lausnir hvað varðar bílastæði og ásýnd svæðisins, með það að markmiði að skapa mannvænt og aðlaðandi íbúðarsvæði. Meirihluti bílastæða verða neðanjarðar, sem dregur verulega úr sjónrænum áhrifum og stuðlar að grænna og heildstæðara yfirbragði svæðisins. Við hönnun bílastæða ofanjarðar verður lögð sérstök áhersla á notkun gegndræpra yfirborðsefna, í samræmi við markmið skipulagsins um blágrænar ofanvatnslausnir.
Með skipulaginu er tryggt að bílastæðamál íbúa séu leyst á fullnægjandi hátt, þar sem aldrei verða færri en eitt bílastæði fyrir hverja íbúð og sérbýli munu almennt hafa tvö til þrjú bílastæði. Því verður ekki skortur á bílastæðum fyrir íbúa svæðisins, enda er mikilvægt að íbúar hafi möguleika á að nýta einkabílinn samhliða öðrum samgöngumátum. Skipulagið byggir því á góðu jafnvægi á milli aðgengis, þæginda og umhverfissjónarmiða.
Ásýnd svæðisins er einn af hornsteinum skipulagsins. Markmiðið er að varðveita sterka tengingu við náttúruna og móta byggð sem fellur að landslagi Blikastaðalands, þar sem forðast verður að ganga á mikilvæg græn svæði eða raska þeim meira en þörf þykir.
Rannsóknir sýna að gott aðgengi að náttúru og grænum svæðum hefur jákvæð áhrif á heilsu og líðan fólks. Náttúrumiðuð hönnun getur leitt til aukinnar framleiðni, færri veikindadaga og bættrar andlegrar heilsu. Þessi nálgun er höfð að leiðarljósi í skipulagi Blikastaðalands og endurspeglar rótgróna áherslu Mosfellsbæjar á lífsgæði íbúa.
Með deiliskipulagi 1. áfanga Blikastaðalands er byggt á þeirri skipulagshefð Mosfellsbæjar að samræma uppbyggingu og náttúru. Heildstæð nálgun á bílastæðalausnir, ásýnd og umhverfi leggur grunn að sjálfbæru, vistvænu og aðlaðandi íbúðarsvæði sem er tilbúið að mæta þörfum framtíðarinnar.
Sævar Birgisson
Bæjarfulltrúi Framsóknar í Mosfellsbæ og varaformaður skipulagsnefndar.




