Ásgeir Sveinsson nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fór fram laugardaginn 5. febrúar. 17 frambjóðendur gáfu kost á sér og greiddu alls 1.044 manns atkvæði.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu.
Ásgeir Sveinsson formaður bæjarráðs fékk afgerandi kosningu í 1. sæti eða um 70% atkvæða. „Ég hlakka til að halda áfram að gera Mosfellsbæ að enn betra samfélagi með því kraftmikla og hæfileikaríka fólki sem mun mynda samheldinn og sterkan lista flokksins í kosningunum í vor.
Endanlegur listi var samþykktur af fulltrúaráði flokksins en Kolbrún Þorsteinsdóttir (4) og Kristín Ýr (11) þáðu ekki þau sæti sem þær lentu í og mun Helga Jóhannesdóttir varabæjarfulltrúi skipa 4. sætið.
Sterkur og fjölbreyttur listi fyrir kosningar
„Ég er mjög þakklátur fyrir það sterka umboð sem ég fékk til þess að leiða listann,“ segir Ásgeir Sveinsson. Það voru 17 manns sem tóku þátt í prófkjörinu og 15 af þeim munu taka sæti á listanum okkar sem er mjög ánægjulegt. Listinn er fjölbreyttur í þekkingu, reynslu og aldri, mjög öflugir nýliðar sem bætast í hópinn okkar sem er mjög jákvætt. Það var mjög mikill áhugi á prófkjörinu og það gefur okkur mikinn kraft og bjartsýni inn í baráttuna fyrir kosningarnar 14. maí.
Meirihlutasamstarf D- og V-lista hefur gengið ákaflega vel á þessu kjörtímabili, við höfum náð að uppfylla allflest okkar markmið sem komu fram í málefnasamningi flokkana. Fram undan hjá okkur er málefnavinna og við munum eins og áður leitast eftir samtali við íbúa um hugmyndir inn í þá vinnu.
Saman getum við gert góða hluti í þágu bæjarbúa
Jana Katrín Knútsdóttir, hjúkrunar- og viðskiptafræðingur hafnaði í 2. sæti í prófkjörinu með 380 atkvæði.
Jana er fædd og uppalin í Mosfellsbæ og segist afar þakklát fyrir stuðninginn.
,,Ég veit að verkefnið er verðugt og ég hlakka til að vinna með þeim fjölbreytta og sterka hópi sem prýðir listann. Ég er sannfærð um að saman getum við gert góða hluti í þágu bæjarbúa,“ segir Jana Katrín.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins 2022
1. Ásgeir Sveinsson Bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri
2. Jana Katrín Knútsdóttir Hjúkrunar- og viðskiptafræðingur
3. Rúnar Bragi Guðlaugsson Bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
4. Helga Jóhannesdóttir Forstöðumaður
5. Hjörtur Örn Arnarson Landfræðingur
6. Arna Hagalínsdóttir Rekstrar- og fjármálastjóri
7. Hilmar Stefánsson Framkvæmdastjóri
8. Brynja Hlíf Hjaltadóttir Laganemi
9. Helga Möller Söngkona og fyrv. flugfreyja
10. Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson Flugnemi
11. Davíð Örn Guðnason Lögmaður
12. Júlíana Guðmundsdóttir Lögfræðingur
13. Gunnar Pétur Haraldsson Sölu- og þjónustufulltrúi
14. Kári Sigurðsson Viðskiptastjóri
15. Þóra Björg Ingimundardóttir Sölu- og þjónusturáðgjafi
16. Franklin Ernir Kristjánsson Háskólanemi/þjónn
17. Ragnheiður Ríkharðsdóttir Fyrrv. bæjarstjóri og alþingismaður
18. Alfa Regína Jóhannsdóttir Kennari
19. Davíð Ólafsson Söngvari
20. Elín María Jónsdóttir Húsmóðir
21. Ari Hermann Oddsson Múrari
22. Bjarney Einarsdóttir Athafnakona