Árni Jónsson nýr oddviti Vina Mosfellsbæjar

Vinir Mosfellsbæjar er eini óflokksbundni listinn sem tekur þátt í sveitarstjórnarkosningum í Mosfellsbæ.
Listinn samanstendur af einstaklingum sem vilja framgang í málefnum sem snúa að lífsgæðum í sveitarfélaginu. Fólk í þessum hópi getur haft ólíkar stjórnmálaskoðanir á landvísu, enda telja Vinirnir að flokkslínur eigi ekki við á sveitarstjórnarstigi: þar skiptir fólk máli, ekki flokkarnir.
Töluverð endurnýjun verður á lista Vina Mosfellsbæjar í vor, enda er hann samsettur af fjölbreyttum hópi einstaklinga sem vilja láta gott af sér leiða.

Hlutu 13% í síðustu í kosningum
Vinir Mosfellsbæjar voru stofnaðir rétt fyrir kosningar 2018 og náðu þá einum kjörnum bæjarfulltrúa, Stefáni Ómari Jónssyni. Í kosningunum 2022 var listinn hársbreidd frá því að bæta við sig bæjarfulltrúa en listinn hlaut 13% atkvæða, sem skilaði honum einum bæjarfulltrúa, Dagnýju Kristinsdóttur.
Vinir Mosfellsbæjar hafa á þessum tveimur kjörtímabilum sýnt hversu dýrmætt það er að vera með bæjarfulltrúa sem ekki eru háðir öðrum hagsmunum en þeim sem snerta íbúa sveitarfélagsins og ekki þurfa að taka tillit til flokkslína, hvorki á landsvísu né í nágranna sveitarfélögum.
Mosfellsbær og íbúar hans hafa hug Vinanna allan.
Öflugt og fjölbreytt teymi leiðir listann en unnið verður að frágangi framboðsins á næstu dögum:

Framboðslisti L-lista

1. Árni Jónsson
2. Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
3. Michele Rebora
4. Guðrún Elísa Sævarsdóttir
5. Þóranna Rósa Ólafsdóttir
6. Katarzyna Królikowska

——

Vinnum að hagsmunum bæjarins
„Innan listans getum við verið kunningjar, en það eina sem skiptir raunverulega máli er að við eigum einn sameiginlegan vin; bæinn okkar, Mosó“ segir Árni Jónsson oddviti Vina Mosfellsbæjar – „og það eru hagsmunir bæjarins sem við vinnum að“.

„Við erum öll með ýmis önnur verkefni á dagskránni en höfum þann sameiginlega metnað að búa til góðan Mosfellsbæ. Það er mikilvægt að þakka þeim sem hafa lagt hönd á plóginn síðustu ár og ætla að láta staðar numið en þeirra framlag er afar dýrmætt fyrir okkur,“ segir Guðfinna Birta brosandi sem skipar 2. sæti á lista í vor.