Áfram Hlégarður
Hlégarður hefur skipað afar mikilvægan sess í lífi íbúa Mosfellsbæjar í 75 ár og er sannkallaður máttarstólpi í sögu sveitarfélagsins.
Frá upphafi hefur hann verið hjarta samfélagsins, staður þar sem fólk kemur saman, deilir stundum og skapar minningar sem lifa kynslóð eftir kynslóð. Mosfellshreppur, Kvenfélag Lágafellssóknar og Ungmennafélagið Afturelding stóðu að byggingu þessa reisulega félagsheimilis. Sú samstaða og framtakssemi endurspeglar þann kraft sem býr í samfélaginu. Óhætt er að segja að ótal Mosfellingar eigi hlýjar minningar tengdar þessu merka menningarhúsi.
Í Hlégarði hefur í gegnum tíðina farið fram fjölbreytt og lifandi starf. Þar voru haldnir hreppsnefndarfundir þar sem teknar voru mikilvægar ákvarðanir um framtíð byggðarinnar. Þar blómstruðu leiksýningar og listalíf, tónleikar voru haldnir við góðar undirtektir og bíósýningar nutu vinsælda eftir að sýningarvél var keypt.
Barnamessur fylltu húsið af söng og gleði, leikfimisæfingar efldu heilsu og samkennd og bingókvöld drógu að sér spennta þátttakendur. Þar fóru fram kosningafundir, kökubasar, veislur og ótal aðrar samkomur sem styrktu tengsl fólks. Hlégarðsböllin voru sérstaklega vinsæl.
Fjölbreyttir viðburðir í tilefni af 75 ára afmælisárinu
Húsið var vígt 17. mars 1951 og fagnar því 75 ára afmæli í ár. Af því tilefni verður blásið til veglegrar afmælisveislu í Hlégarði. Boðið verður upp á tónlist, kaffi og veitingar í notalegu andrúmslofti, auk hins vinsæla sögukvölds þar sem saga hússins verður rifjuð upp. Að þessu sinni verður afmælisbarnið sjálft, Félagsheimilið Hlégarður, í forgrunni og saga þess dregin fram á lifandi og persónulegan hátt.
Nafnið Hlégarður hlaut húsið við vígsluna árið 1951. Það var Valgerður Guðmundsdóttir frá Seljabrekku sem átti hugmyndina að þessu fallega nafni. Nafnið hefur tvíþætta merkingu: annars vegar vísar það til skjóls, enda var húsið ekki reist á hól líkt og algengt var á þeim tíma, heldur í skjóli; hins vegar táknar það skjól fyrir íbúana sjálfa, griðastað frá amstri hversdagsins þar sem hægt er að staldra við og njóta samveru. Slíkt skjól er samfélagi ómetanlegt.
Rétt ákvörðun að taka Hlégarð heim
Það skiptir bæjarfélagið miklu máli að eiga vettvang þar sem fólk getur hist og átt innihaldsríkar stundir saman, því maður er manns gaman. Að hittast, ræða saman, dansa, hlusta á erindi, halda veislur, spila eða stunda hannyrðir styrkir félagsauðinn og lyftir okkur hvert öðru upp. Þannig verður til góður bæjarbragur sem einkennist af hlýju og samstöðu.
Eitt af fyrstu verkum meirihluta Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar var að sveitarfélagið tæki á ný yfir rekstur Hlégarðs. Með þeirri ákvörðun var húsið í raun tekið aftur heim og dyrnar opnaðar upp á gátt fyrir íbúa bæjarins. Það skapaði ný tækifæri til að nýta Hlégarð enn betur sem menningarhús og félagsheimili fyrir fjölbreytta hópa samfélagsins.
Á síðustu árum hefur fjöldi viðburða í Hlégarði sjaldan verið meiri eða fjölbreyttari. Ráðinn var viðburðarstjóri og starfsmenn bæjarins hafa unnið ötullega að uppbyggingu öflugs og metnaðarfulls viðburðahalds þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sú ákvörðun að taka yfir reksturinn sýnir hversu jákvæð áhrif framsýnar ákvarðanir geta haft á samfélagið.
Næstu skref eru endurbætur á annarri hæð hússins svo nýta megi hana enn betur til heilla fyrir alla Mosfellinga. Með því tryggjum við að Hlégarður verði áfram lifandi vettvangur menningar og samveru um ókomin ár.
Áfram Hlégarður.
Halla Karen Kristjánsdóttir og Sævar Birgisson bæjarfulltrúar Framsóknar





