Mosfellsbær og Samtökin ’78 hafa gengið frá samningi um áframhaldandi samstarf um hinsegin fræðslu og ráðgjöf við sveitarfélagið.
Árið 2023 var undirritaður þriggja ára samningur sem fól í sér árlega fræðslu fyrir nemendur í 3., 6. og 9. bekkjum grunnskóla bæjarins. Þá fékk starfsfólk skóla, félagsmiðstöðva og íþróttamiðstöðva einnig fræðslu. Ungmenni, aðstandendur og fagaðilar í Mosfellsbæ höfðu jafnframt aðgang að ráðgjöf frá Samtökunum ’78 án endurgjalds.
Nýr samningur gildir til ársins 2029 og tryggir áframhald á þessari fræðslu og ráðgjöf næstu þrjú skólaár. Með samningnum er lögð áhersla á að skólasamfélagið búi yfir þekkingu á hinsegin málefnum og taki virkan þátt í umræðu um fjölbreytileika í sinni víðustu mynd.
Jafnframt er markmiðið að félagsmiðstöðvar og aðrir sem starfa með börnum og ungmennum fái þann stuðning sem þarf til að efla umræðu á sínum vettvangi, með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir fordóma, einelti og annað ofbeldi.
