Börnin fyrst – ábyrgð sem við getum ekki frestað

Ingibjörg Einarsdóttir

Í samfélagi sem vill standa undir nafni þarf að tryggja að öll börn fái þann stuðning sem þau þurfa – ekki seinna, heldur þegar þörfin kemur upp.
Það á sérstaklega við um börn sem glíma við fjölþættan vanda og þurfa samstillt viðbrögð frá upphafi.

Reynslan sýnir að velferðarkerfið grípur of oft of seint inn í. Þegar það gerist eru vandamál orðin dýpri, áhrifin meiri og úrræðin bæði kostnaðarsamari og erfiðari í framkvæmd. Þetta er ekki aðeins spurning um kerfi – heldur ábyrgð gagnvart börnum, foreldrum þeirra og öðrum aðstandendum.

Við þurfum að breyta þessari nálgun. Sveitarfélagið þarf að sýna frumkvæði og grípa fyrr inn í áður en börn falla í gegnum möskva kerfisins. Það kallar á skýrari samhæfingu milli skóla, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu, þar sem markmiðið er eitt: að bregðast tímanlega og markvisst við. Reynsla mín er að embættismenn margir, m.a. í Mosfellsbæ, hafa góðan vilja til að bregðast við en þeim skortir oftar en ekki bjargir, fjármagn og tilsvarandi úrræði.

Fyrir börn með sérstakar þarfir þarf að tryggja virk og raunhæf úrræði sem taka mið af þeirra aðstæðum. Slík úrræði þurfa að vera sveigjanleg, aðgengileg og byggð á faglegri þekkingu, en jafnframt á mannlegum skilningi. Enginn á að þurfa að berjast við kerfið til að fá aðstoð.

Það er einnig mikilvægt að styðja foreldra og aðstandendur betur. Þegar barn á í erfiðleikum hefur það áhrif á allt nærumhverfið. Með því að veita fjölskyldum markvissan stuðning má styrkja grunninn og bæta líðan barnsins til lengri tíma.

Við getum ekki sætt okkur við kerfi sem bregst of seint við þegar mest á reynir. Við eigum að byggja upp samfélag sem sér, skilur og bregst við – strax. Það er ekki aðeins réttlætismál, heldur fjárhagslega skynsamlegt og samfélagslega nauðsynlegt.

Börnin okkar eiga ekki að falla í gegnum möskvana. Þau eiga að fá tækifæri til að dafna – og það er okkar sameiginlega ábyrgð að tryggja það.

Ingibjörg Einarsdóttir – Skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ