Áfram veginn – í þágu barna og ungmenna

Guðný Maja Riba

Sveitarstjórnarmál snúast fyrst og fremst um nærsamfélagið, það sem snertir daglegt líf fólks. Þess vegna hefur verið ánægjulegt að fylgjast með því hvernig meirihlutinn í Mosfellsbæ hefur unnið markvisst að því að styrkja umhverfi barna og ungmenna.
Sú vinna byggir á átaks- og forvarnarverkefninu Börnin okkar og innleiðingu barnvæns sveitarfélags. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun, betra aðgengi að stuðningi og aukna samvinnu milli kerfa. Markmiðið er að bregðast fyrr við og styðja betur við börn, ungmenni og fjölskyldur í Mosfellsbæ.
Það gerði Samfylkingin ásamt samstarfsflokkum í meirihlutanum af festu og með skýrri sýn hvernig bæta mætti líðan og auka virkt samtal við börn og ungmenni í Mosfellsbæ.
Þetta hefur þegar skilað sér í breyttu verklagi og auknu samstarfi milli skóla, frístundastarfs og velferðarþjónustu, með það að markmiði að þjónustan verði samfelldari og betur samhæfð í kringum hvert barn og ungmenni. Ungmennaráð hefur verið eflt og þátttaka barna og ungmenna aukin með markvissari leiðum til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þá hefur aðgengi foreldra að ráðgjöf og stuðningi verið bætt, unnið að skýrari verkferlum og aukinni eftirfylgd í málum barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu. Frístundastyrkur hefur verið hækkaður þannig að fleiri börn geti tekið þátt í skipulögðu frístundastarfi, opnunartími

Auður Einarsdóttir

íþróttamannvirkja lengdur fyrir ungmenni og starf í félagsmiðstöðvum eflt. Þá hefur aðgengi að sálfræðiþjónustu í skólum verið bætt og unglingaráðgjafi tekið til starfa. Allt skiptir þetta máli.
Þessi verkefni eru ekki búin og það skiptir máli að við í Samfylkingunni fáum að halda áfram að setja börn og ungmenni í forgang því það sem hefur verið byggt upp þarf að fá að festa rætur og þróast áfram. Við vitum að þær ákvarðanir sem eru teknar í dag hafa bein áhrif á líf barna og ungmenna til framtíðar. Þess vegna er mikilvægt að halda áfram að leita eftir sjónarmiðum barna og ungmenna og tryggja að þau hafi raunveruleg áhrif á nærumhverfi sitt.
Það er ekki nóg að setja fram stefnur heldur þarf að fylgja þeim eftir í daglegu starfi. Það krefst þess að við séum stöðugt að meta hvað virkar, hvað má bæta og hvar þarf að bregðast við.
Samfylkingin vill halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið sett af stað. Með skýrri sýn, ábyrgri forgangsröðun og festu.
Því hvernig við stöndum að málefnum barna og ungmenna endurspeglar það samfélag sem við viljum byggja börnum og ungmennum í Mosfellsbæ.

Guðný Maja Riba, kennari og Auður Einarsdóttir, laganemi, skipa 2. og 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.