Getum gert betur í grunnskólamálum í Mosfellsbæ

Nína Huld Leifsdóttir

Öflugir grunnskólar eru ein mikilvægasta stoð samfélagsins. Þar verja börn stórum hluta dagsins og þar mótast bæði þekking þeirra og félagsfærni til framtíðar.
Í Mosfellsbæ eigum við góða skóla og metnaðarfullt starfsfólk, en eins og víða annars staðar hefur álag aukist á kennara og stuðningsþjónustu. Það er ljóst að við þurfum að bregðast við. Þá spyr ég þarf mögulega að pressa á að setja fjármagn í úrræðin og forgangsraða betur, sem þýðir aukið starfshlutfall sérfræðinga?

Svar mitt er já. Börn eru ólík og þurfa mismunandi stuðning á sinni skólagöngu. Sum þurfa meiri aðstoð við nám, önnur við tal og enn önnur við samskipti eða félagsfærni. Þess vegna er lykilatriði að skólarnir hafi aðgang að fjölbreyttri fagþekkingu.

Við erum hins vegar eftir á miðað við nágrannasveitarfélög þegar kemur að t.d. talmeinaþjónustu og aðgengi að sérhæfðu fagfólki. Það birtist meðal annars í biðlistum og takmörkuðum úrræðum. Við þurfum að efla stuðningsþjónustu innan skólanna, fjölga fagmenntuðum sérfræðingum á borð við þroskaþjálfa, talmeinafræðinga og sálfræðinga og stytta biðtíma eftir þjónustu. Með öflugri teymisvinnu kennara og sérfræðinga er hægt að grípa fyrr inn í og tryggja að hvert barn fái þann stuðning sem það þarf, þegar þess er þörf. En þessu verður ekki breytt nema við aukum fjármagn og ráðum í störf sem eru brýn nauðsyn inn í skólasamfélagið.
Grunnskólarnir í Mosfellsbæ standa sig vel en við getum alltaf gert enn betur. Með skýrri stefnu og skynsamlegri forgangsröðun getum við byggt upp öflugt skólasamfélag þar sem hvert barn fær að njóta sín og dafna samkvæmt eigin getu.

Nína Huld Leifsdóttir skipar 20. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.