Bjóða upp á náttúrleg bætiefni sem styrkja heilsuna

Mosfellingarnir Valgeir Árni Svansson og Birta Jónsdóttir eiga og reka fyrirtækið og netverslunina Stirnirheilsa.is. Þau bjóða upp á náttúrulegar heilsuvörur í hæsta gæðaflokki, framleiddar með sjálfbærni og hreinleika í fyrirrúmi.
„Við höfum áhuga á öllu því sem viðkemur heilsu og heilsutengdum vörum. Maður hefur í gegnum tíðina prófað ýmis fæðubótarefni og fundið mismikinn mun á sér en við erum að skapa okkar eigin vörumerki með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á heilsu annarra,“ segir Valgeir Árni en hægt er að nálgast vörurnar á heimasíðu Stirnis, völdum Nettóverslunum og á næstunni í apótekum Lyfjavals.

Skapa sitt eigið vörumerki
„Það var árið 2024 sem við kynntumst þessum vörum og fundum gríðarlegan mun á eigin líðan, við ákváðum í framhaldinu að fara í mikla rannsóknarvinnu og fundum frábæran framleiðanda í Indlandi sem við hófum samstarf við.
Nú bjóðum við upp á fimm vörur sem allar eru unnar úr vandlega völdum hráefnum frá bændum sem fylgja lífrænum ræktunaraðferðum. Við höfum mikla trú á þeim vörum sem við bjóðum upp á og höfum fengið frábær viðbrögð frá okkar viðskiptavinum. Markmið okkar er að færa þér hágæða náttúruvörur sem styðja við heilbrigðan lífsstíl og almenna vellíðan.“

Bjóða Mosfellingum 20% afslátt
Stirnir heilsa býður upp á náttúruleg fæðubótarefni sem styðja orku, jafnvægi og almenna vellíðan. Þetta eru turmerik, aswaganda, amla og moringa.
„Það eru margir sem þekkja aswaganda sem er m.a. góð fyrir taugakerfið og turmerik sem er eitt mest rannsakaða efni í heim þegar kemur að bólgum og frumuvernd en það eru færri sem þekkja moringa og amla. Moringa er unnið úr laufum moringa-plöntunar og er talin ein næringarríkasta ofurfæða heims og amla er þekkt fyrir að styðja ónæmiskerfið,“ segir Valgeir Árni og tekur fram að Mosfellingum bjóðist 20% afsláttur af fyrstu pöntun í netverslun Stirnirheilsa.is með kóðanum MOSO20.