Uppbygging sem styrkir atvinnulíf og þjónustu í Mosfellsbæ
Fyrsta áfanga gatnagerðar í Korputúni í Mosfellsbæ er nú lokið og uppbygging á nýju atvinnu- og verslunarsvæði hafin. Þessa dagana rís næst Vesturlandsvegi þriggja hæða verslun, vöruhús og höfuðstöðvar JYSK sem er hæsta bygging hverfisins og markar upphaf aukinnar verslunar og þjónustu fyrir íbúa Mosfellsbæjar og nærliggjandi sveitarfélaga.
Reitir fasteignafélag er eigandi þróunarsvæðisins og fer fyrir uppbyggingunni, en hverfið verður á stærð við Skeifuna. Lóð Jysk er um 20% af svæðinu sem verða rúmir 90 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði. Korputún verður fyrsta atvinnuhverfið á Íslandi til að hljóta BREEAM-vottun en hún tryggir að sjálfbærar áherslur séu ávallt í fyrirrúmi með vel skilgreindum viðmiðum um samfélagsleg, umhverfisleg og efnahagsleg gæði.
Reitir byggja og leigja út húsnæðið til rekstraraðila, en Jysk byggði sitt hús sjálft.
„Ég fagna því að við séum að hefja uppbyggingu á þessu nýja atvinnusvæði. Það styrkir samfélagið að fá ný fyrirtæki á svæðið, bæði hvað varðar þjónustu við íbúa og fleiri atvinnutækifæri. Við eigum í mjög góðu samstarfi við Reiti um þróun svæðisins og höfum væntingar um að fá hingað öflug og fjölbreytt fyrirtæki, sem verður þjónustubót fyrir íbúa. Með þessari uppbyggingu Korputúns styrkir Mosfellsbær stöðu sína sem ört vaxandi og sjálfbært sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu.” segir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.




