Börnin í forgangi
Verkefnið „Börnin okkar“ er eitt af þeim verkefnum sem meirihlutinn í Mosfellsbæ, Framsókn, Samfylking og Viðreisn, höfum komið á á þessu kjörtímabili og ég er sérstaklega stolt af.
Verkefnið varð til í kjölfar mikillar fjölgunar barnaverndartilkynninga árið 2024 og í kjölfarið var ákveðið að setja 100 milljónir króna í aukið fjármagn til forvarna í fjárhagsáætlun 2025.
„Börnin okkar“ byggir á aðgerðaráætlun með 27 aðgerðum sem skiptast í almennar forvarnir, snemmtækan stuðning og styrkingu barnaverndar. Aðgerðirnar hafa verið unnar undir forystu bæjarstjórans okkar Regínu Ásvaldsdóttur og eru þær allar komnar í framkvæmd.
Það sem gerir verkefnið einstakt er að aðgerðirnar byggja á samráði við foreldra, ungmennaráð og fjölmarga sérfræðinga sem vinna með börnum og ungmennum. Þannig endurspeglar verkefnið raunverulegar þarfir samfélagsins.
Ég vil þakka fyrir frábæra vinnu hjá öllum þeim sem hafa lagt hug sinn og hjarta í þetta verkefni og það er dásamlegt að heyra og sjá hvað þetta hefur hjálpað mörgum og einnig glatt marga.
Stuðningsþjónusta við börn og ungmenni
Með verkefninu hefur stuðningsþjónusta við börn og ungmenni verið efld til muna. Nú er föst viðvera sálfræðinga í skólunum okkar þar sem unglingar geta leitað beint til þeirra án þess að bóka viðtal fyrir fram. Mosfellsbær er einnig í samstarfi við Bergið headspace sem býður upp á gjaldfrjálsa viðtalstíma einu sinni í viku fyrir ungt fólk.
Þá hefur Foreldralína verið sett á laggirnar, þar sem foreldrar geta hringt og fengið ráðgjöf frá sálfræðingi eða félagsráðgjafa. Hingað til hafa borist 83 símtöl í gegnum foreldralínuna og í 80% tilfella hefur verið óskað eftir samtali við sálfræðing, sem sýnir mikla þörf fyrir slíka þjónustu. Þá voru stöðugildi aukin í barnavernd með ráðningu unglingaráðgjafa.
Foreldrasamstarf og fræðsla
Mikil áhersla hefur verið lögð á foreldrasamstarf og fræðslu. Haldin hafa verið fjöldi námskeiða og viðburða, þar á meðal fyrirlestrar um samskipti barna og foreldra, vinnustofur í samstarfi við SAMMOS, fræðslukvöld um skjánotkun og samfélagsmiðla auk bíósýningar með opnum umræðum.
Þá hafa níu námskeið verið haldin með um 155 þátttakendum, meðal annars námskeiðin Ertu að tengja? og PMTO foreldrafærni og einnig námskeið um ADHD.
Fleiri námskeið eru fyrirhuguð, svo sem Ertu að tengja við unglinginn þinn og námskeið um foreldramiðaða hugræna atferlismótun.
Skólamál og farsæld barna
Í skóla- og frístundamálum hefur margt verið gert til að efla farsæld barna. Frístundastyrkur hefur verið hækkaður, rafíþróttadeild endurvakin í samstarfi við Mosfellsbæ og framhaldsskólann þar sem Mosfellsbær hefur veitt styrk til tækjakaupa.
Þá hefur verið sérstök opnun í íþróttamiðstöð og sundlaug fyrir ungmenni einu sinni í mánuði, starf fyrir 10–12 ára börn hefur verið eflt og starfsfólki í félagsmiðstöð fjölgað. Verkefnið „Íþróttir fyrir alla“ hefur fengið aukinn stuðning og ungmennum boðið upp á sjálfsvarnarnámskeið í samstarfi við Þitt öryggi og Bólið.
Skólamál og fræðsla barna
Mosfellsbær er formlega orðinn Barnvænt sveitarfélag og Helgafellsskóli Réttindaskóli UNICEF.
Samskiptasáttmáli í skólum Mosfellsbæjar er í undirbúningi og stjórnendateymi í skólum efld. Þá hefur málstjórum í farsæld barna fjölgað.
Samstarf Barnaverndar og skóla hefur verið styrkt með reglulegum samráðsfundum og Krakka Mosó sett af stað til að efla lýðræði barna.
Forvarnir eru mikilvægar
Allt þetta sýnir að með verkefninu „Börnin okkar“ er markvisst verið að fjárfesta í framtíðinni. Með öflugum forvörnum er verið að styðja við börn og fjölskyldur þeirra. Við erum líka að sýna að það er mikilvægt að vera meira í forvörnunum en ekki að reyna að lækna eftir á eða plástra hér og þar.
Öflugar forvarnir skipta máli og það fjármagn sem sett er í þær er vel varið og skilar sér í betri líðan, auknum stuðningi og sterkari samfélagi til framtíðar.
Halla Karen Kristjánsdóttir
bæjarfulltrúi Framsóknar og formaður bæjarráðs




