Þóra útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
Á sérstakri hátíðardagskrá við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ fimmtudaginn 29. ágúst var leirlistakonan Þóra Sigurþórsdóttir útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024.
Menningar- og lýðræðisnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Hrafnhildur Gísladóttir formaður nefndarinnar leirlistakonunni Þóru Sigurþórsdóttur verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé sem fylgir nafnbótinni.
Framúrskarandi í leirlist
Þóra Sigurþórsdóttir stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og lauk prófi frá leirlistardeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989.
Að loknu námi opnaði hún vinnustofu í Álafosskvos og tók mikinn þátt í því fjölskrúðuga listalífi sem blómgaðist næstu árin í kvosinni. Margir listamenn voru þar með opnar vinnustofur, tóku á móti gestum og héldu samsýningar á staðnum.
Þóra vinnur jafnt nytjahluti sem skúlptúra og nýtir ásamt leir og járni annan efnivið í listsköpun sinni, til dæmis hrosshár og kindahorn.
Þóra hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Hún er búsett í Mosfellsbæ og starfrækir vinnustofu að Hvirfli í Mosfellsdal.
Þóra hefur verið framúrskarandi í leirlist hér á landi síðustu áratugi og því vel að heiðrinum komin sem bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024.