Sr. Guðrún Helga bætist í prestahópinn
Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir hefur verið ráðin prestur í Lágafellssókn í Mosfellsprestakalli. Prestarnir verða því þrír í stækkandi bæjarfélagi. Hún var vígð til prestþjónustu í Lágafellssókn annan í hvítasunnu frá Skálholtsdómkirkju.
Sr. Guðlaug Helga ólst upp á Hvolsvelli og er dóttir hjónanna Guðrúnar Árnadóttur og Guðlaugs Friðþjófssonar. Hún er gift Einari Þór Hafberg sérfræðingi í lifrarsjúkdómum og lifrarígræðslulækningum barna og þau eiga tvær dætur, Brynhildi Guðrúnu Hafberg 14 ára og Ísafold Örnu Hafberg 12 ára. Guðlaug Helga hefur síðastliðin tvö ár starfað hjá Lágafellssókn og haft umsjón með foreldramorgnum, eldri borgarastarfi og sem fermingarfræðari.