Regína Ásvalsdóttir verður næsti bæjarstjóri
Ákveðið hefur verið að Regína Ásvaldsdóttir gegni starfi bæjarstjóra í Mosfellsbæ kjörtímabilið 2022-2026.
Regína hefur áralanga farsæla reynslu af stjórnun og rekstri á vettvangi sveitarfélaga. Hún er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Áður gegndi hún stöðu bæjarstjóra Akraneskaupstaðar árin 2013-2017. Þá hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Festu, félags um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, verið skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar.
Regína er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Aberdeen, diplóma í opinberri stjórnsýslu og cand. mag. í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Osló. Á ferli sínum hefur Regína átt sæti í fjölmörgum stjórnum og starfshópum, nú síðast starfshópi sem skilaði tillögum um húsnæðismál til þjóðhagsráðs í maí síðastliðnum. Regína hefur marktæka reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun og hefur leitt vinnu við stefnumótun á sviði velferðarmála og atvinnumála. Velferðarsvið hefur ennfremur verið leiðandi svið hjá Reykjavíkurborg þegar kemur að stafrænni þróun og áherslu á þjónustustjórnun.
Áætlað er að Regína hefji störf í byrjun september en ráðningarsamningurinn tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur af bæjarráði fimmtudaginn 14. júlí og birtur opinberlega í kjölfarið.
Halla Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs:
„Við erum lánsöm hér í Mosfellsbæ að ganga til samstarfs við svona reynslumikinn stjórnanda eins og Regína er. Framundan eru stór verkefni, meðal annars í uppbyggingu og áframhaldandi fjölgun íbúa og stefnumótun til framtíðar. Þessi verkefni fela í sér fjölbreyttar áskoranir og því mikilvægt að við fáum til liðs við okkur einstakling með mikla og farsæla reynslu, stóran skammt af almennri skynsemi, þjónustulund og brennandi áhuga á málefnum sveitarfélagsins. Við bjóðum Regínu velkomna í Mosfellsbæ og hlökkum til samstarfsins.“
Regína Ásvalsdóttir, verðandi bæjarstjóri:
„Ég þakka kærlega fyrir það traust í minn garð sem mér er sýnt með ráðningunni. Mosfellsbær er gott og fjölskylduvænt samfélag í örum vexti og hér eru mörg tækifæri þegar til framtíðar er litið. Ég hlakka til að starfa með öflugum bæjarfulltrúum og góðu starfsfólki Mosfellsbæjar að þeim mikilvægu verkefnum sem eru framundan.“