Bæjarhátíð Mosfellsbæjar 2020 aflýst
Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í dag að aflýsa bæjarhátíðinni Í túninu heima vegna kórónuveirufaraldrusins. Þetta var ákveðið eftir tillögu neyðarstjórnar bæjarins sem samþykkt var á fundi menningar- og nýsköpunarnefndar á þriðjudag.
Hátíðin var fyrirhuguð dagana 28.-30. ágúst. Tindahlaupinu sem fara átti fram sömu helgi er einnig aflýst, en Mosfellsbær er einn af framkvæmdaraðilum þess.
„Til stóð að halda hátíðina með breyttu sniði og færa hátíðarhöldin frekar út í hverfin. Í ljósi hertari samkomureglna og þróun Covid-19 faraldursins undanfarnar vikur sýnir Mosfellsbær ábyrgð í verki og aflýsir þessum viðburðum.“