Regína hættir sem bæjarstjóri

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur lagt fram beiðni um lausn frá störfum og hefur þegið boð um að taka 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningum í vor.
Beiðni Regínu verður afgreidd á næsta bæjarstjórnarfundi en lagt var fyrir að Þóra Margrét Hjaltested bæjarlögmaður verði ráðin bæjarstjóri frá þeim degi sem Regína lýkur störfum eða í síðasta lagi 1. apríl og út kjörtímabilið.

Þakklát fyrir farsælt samstarf
„Ég er gríðalega stolt og ánægð með að hafa fengið tækifæri til að starfa sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ á þessu kjörtímabili. Mosfellsbær er einstakt samfélag og ég hef verið mjög lánsöm með samstarfsfólk, hjá Mosfellsbæ starfar svo mikið af traustu og góðu fólki á öllum vígstöðvum.
Það er að hefjast nýr kafli í mínu lífi með þessari ákvörðun og fyrir mig persónulega er þetta afar stórt stökk því ég hef nánast allan minn starfsaldur verið óflokksbundin,“ segir Regína.

Mosfellsbær er þétt samfélag
„Starfið hefur verið farsælt og gengið vel, það hafa auðvitað komið upp alls konar áskoranir en í heildina hefur tekist að ná samstöðu allra bæjarfulltrúa í stórum og veigamiklum málum sem er svo mikilvægt.
Þegar mér bauðst þetta starf á sínum tíma fannst mér það spennandi áskorun, Mosfellsbær er þétt samfélag sem er að breytast og stækka, hér ríkir mikill félagsauður og það er áskorun að halda í það gamla og góða sem einkennir bæjarbraginn en jafnframt að taka vel á móti nýju fólki og stuðla að þróun samfélagsins.“

Spennandi framtíðar­verkefni
„Það eru mörg spennandi verkefni fram undan eins og til dæmis í Álafosskvosinni þar sem verið er að vinna að safni og veitingastað, ég held að þetta verði mikil lyftistöng fyrir svæðið. Á kjörtímabilinu hefur verið unnið að verkefnum sem auka félagslega samveru bæjarbúa eins og að taka yfir rekstur Hlégarðs og ráða sérstakan viðburðastjóra og einnig að færa félagsstarf eldri borgara í Brúarland.
Ég er líka gríðarlega ánægð með verkefni sem hafa styrkt stöðu barna í samfélaginu og samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu og opnun Hlýjunnar, dagdvalar á Eir. Þar iðar allt af lífi á hverjum degi,“ segir Regína að lokum og þakkar Mosfellingum ánægjuleg kynni.