79 ára aldursmunur á frambjóðendum

Efstu á lista ásamt heiðursborgara. Efri röð: Hjörtur, Nanna, Magnús, Ásgeir, Þórarinn. Neðri röð: Elísabet, Hilmar, Salome og Jana.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar var samþykktur einróma af fulltrúaráði félagsins á dögunum.
Hilmar Gunnarsson ritstjóri leiðir flokkinn í Mosfellsbæ, en hann vann í prófkjöri flokksins með miklum yfirburðum þar sem hann fékk 92% atkvæða í fyrsta sætið.
Í öðru sæti er Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og í því þriðja er Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari. Fjórða sætið skipar Hjörtur Örn Arnarson, landfræðingur og í fimmta sæti er Þórarinn Örn Andrésson framkvæmdastjóri. Ásgeir Sveinsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri, sem leitt hefur listann síðastliðin fjögur ár skipar nú 6. sæti.
Heiðurssæti listans skipar heiðursborgarinn Salome Þorkelsdóttir sem verður 100 ára á næsta ári.

Framboðslisti D-lista
1. Hilmar Gunnarsson
2. Jana Katrín Knútsdóttir
3. Elísabet S. Ólafsdóttir
4. Hjörtur Örn Arnarson
5. Þórarinn Örn Andrésson
6. Ásgeir Sveinsson
7. Magnús Ingi Ingvarsson
8. Brynja Hlíf Hjaltadóttir
9. Nanna Björt Ívarsdóttir
10. Elín María Jónsdóttir
11. Árni Bragi Eyjólfsson
12. Katrín Dögg Hilmarsdóttir
13. Jón Magnús Jónsson
14. Gunnhildur Einarsdóttir
15. Þorsteinn Birgisson
16. Halldóra Sif Guðlaugsdóttir
17. Jódís Lilja Jakobsdóttir
18. Alexander V. Kárason
19. Hafrún Hafliðadóttir
20. Nína Huld Leifsdóttir
21. Aron Valur Gunnlaugsson
22. Salome Þorkelsdóttir

Hilmar Gunnarsson

Spennandi kosningabarátta með frábæru fólki
„Framboðslisti okkar Sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar í vor er nú klár. Öflugur, fjölbreyttur og skipaður fólki sem býr yfir reynslu, krafti og vilja til að leggja sitt af mörkum fyrir heimabæinn okkar. Ég er stoltur af liðinu og hlakka til að takast á við komandi vikur í spennandi kosningabaráttu með þessu frábæra fólki.
Hér í Mosfellsbæ þurfum við góða og aðgengilega þjónustu við íbúa, sterka grunnþjónustu og öflugt skóla- og frístundastarf. Við þurfum að vanda okkur í stjórnsýslunni, tryggja að ferlar séu skýrir, boðleiðir stuttar og að við séum alltaf að vinna í þágu íbúa.
Í þessu öllu er mikilvægt að við höldum í bæjarbraginn. Ég hlakka til að taka samtal við Mosfellinga um hvað má betur fara. Þetta verður skemmtilegt og fyrir pólitíska nýliðann mig – alveg áreiðanlega lærdómsríkt líka.“